Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Metfjöldi bíður eftir hjúkrunarrými

Ábyrgð óljós innan kerf­is­ins

Metfjöldi bíður eftir hjúkrunarrými
Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: PeopleImages.com - Yuri A í gegnum Shutterstock

Tæplega 700 ein­stak­lingar bíða nú eftir hjúkr­un­ar­rými, sem er mesti fjöldi sem mælst hefur hér á landi. Af þeim eru 127 í tíma­bundnu bið­rými á sjúkra­húsum eða heil­brigð­is­stofn­unum og bíða þar eftir var­an­legu úrræði.

Sigurjón Norberg Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í vel­ferð­ar­þjón­ustu, segir að hluti vand­ans sé að ekki hafi verið nægi­lega skýrt innan stjórn­sýsl­unnar hver beri ábyrgð á því að byggja upp hjúkr­un­ar­rými.

„Við á hjúkr­un­ar­heim­il­unum finnum fyrir því að við erum að fá sífellt til okkar eldra fólk og veik­ara fólk. Og það er því mjög mik­il­vægt að vinna í því að byggja upp fleiri hjúkr­un­ar­rými á réttum stöðum og við­eig­andi úrræði fyrir þennan hóp af fólki,“ segir Sigurjón í sam­tali við RÚV.

Uppbygging ekki haldið í við þörfina

Í dag eru um 3.000 hjúkr­un­ar­rými í land­inu og er gert ráð fyrir að 120 bæt­ist við á þessu ári. Næstu þrjú árin hyggj­ast stjórn­völd fjölga þeim um 600 til við­bótar, eða tæp­lega 200 á ári. Þetta er aukn­ing frá fyrri árum þar sem aðeins var bætt við um 40 rýmum árlega frá 2017 til 2024.

Sigurjón telur þessa hægu fjölgun hafa átt þátt í þeirri stöðu sem nú er uppi. Þar að auki fjölgi eldra fólki stöðugt, sem eykur eft­ir­spurn­ina enn frekar.

„Og svo hefur kerfið í kringum upp­bygg­ing­una ekki verið nægi­lega gott. Það hefur ekki verið nægi­lega skýrt hver ber ábyrgð á upp­bygg­ing­unni og hefur verið mik­il­vægt að laga það. Og núna eru uppi áform á vegum stjórn­valda að gera það, og það er mjög mik­il­vægt,“ segir hann.

Þjónustan á að snúast um fólkið

Sigurjón leggur áherslu á að hjúkr­un­ar­heim­ili séu heim­ili íbú­anna, ekki vinnu­staðir starfs­fólks­ins.

„Fyrir okkur eru hjúkr­un­ar­heim­ili heim­ili fólks. Og það er mjög mik­il­vægt að fólk fái að verja þessum síð­ustu árum sínum á stað þar sem þau vilja búa, velja sér heim­ili og þar sem við getum þjón­u­stað þau sem best,“ segir hann og bæti við að lokum: „Við sem störfum á hjúkr­un­ar­heim­ilum erum að vinna inni á heim­ilum fólks, þau eru ekki að búa inni á okkar vinnu­stað. Það er mjög mik­il­vægt að fólk fái að vera þar sem það vill og við getum þjón­u­stað þau eins og þau eiga skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ