Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mála Silfurtorg á Ísafirði í litum trans fánans

„Réttindi trans fólks eru líka okkar rétt­indi!“

Mála Silfurtorg á Ísafirði í litum trans fánans
Diego Ragnar Angemi Hinsegin Vest­firðir styðja við rétt­indi trans fólks. Mynd: Gayiceland.is

Í til­efni af alþjóða­degi gegn for­dómum og ofbeldi gagn­vart hinsegin fólki, IDAHOBIT, þann 17. maí, mun Silf­ur­torg á Ísafirði verða málað í litum trans fán­ans. Diego Ragnar Angemi, með­limur í hópnum Hinsegin Vest­firðir og íbúi bæj­ar­ins, segir í við­tali við Gay Iceland að með þessu vilji þau vekja athygli á mik­il­vægi sam­stöðu og veita öðrum inn­blástur.

„Við vonum að þessi litla fram­tak okkar frá litla bænum okkar við afskekktan fjörð á Íslandi, geti veitt öðrum inn­blástur og þá von sem við öll þurfum,“ segir Diego Ragnar Angemi í við­tal­inu.

Að sögn Diego hefur hug­myndin hlotið góðar und­ir­tektir innan hóps­ins Hinsegin Vest­firðir.

„Hug­mynd­inni hefur í heild­ina verið vel tekið meðal hóps­ins. Það ríkir sam­eig­in­legur skiln­ingur um að innan regn­boga­fjöl­skyld­unnar sé trans fólk sá hópur sem orðið hefur fyrir mestum og verstum árásum að und­an­förnu,“ segir hann.

Þegar hóp­ur­inn leit­aði til bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar með beiðni um leyfi og stuðn­ing, fékkst taf­ar­laus jákvæð svör.

„Sem gerði okkur öll afskap­lega glöð og stolt að búa í þessum bæ,“ segir Diego.

Hópurinn Hinsegin Vest­firðir er sam­fé­lag hinsegin fólks á Vest­fjörðum, eða með tengsl við svæðið, og hefur verið starf­andi í gegnum Facebook í nokkur ár. Í dag telur hóp­ur­inn yfir 150 með­limi og hefur und­an­farin tvö ár unnið að því að fá leyfi til að mála regn­bog­ann á torg­inu.

„Já, við höfum síð­ustu þrjú ár málað hefð­bundna sex lita regn­bog­ann. En í ár ákváðum við að hafa lit­ina sex við upp­haf og lok stígs­ins, en á miðju leið­ar­innar mun hann breyt­ast í liti trans fán­ans,“ segir Diego.

Hann bendir á að Ísa­fjörður eigi sér sögu í tengslum við sýni­leika trans fólks.

„Bara í fyrra sýndu kvik­mynda­hús um land allt íslensku kvik­mynd­ina Ljós­vík­ingar (Odd Fish), sem fjallar um trans konu (leikin af Örnu Mögnu Danks) sem kemur út úr skápnum í sjáv­ar­þorpi, og það þorp er Ísa­fjörður og myndin var tekin upp hér,“ segir hann.

„Einnig, fyrir nokkrum árum, var Fjall­konan á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum 17. júní, sem leiðir skrúð­göng­una og flytur hátíð­ar­ræð­una, leikin af Veigu Grét­ars­dóttur, trans konu og íbúa Ísa­fjarðar,“ bætir Diego við.

Hann segir að póli­tísk staða trans fólks á heims­vísu hafi verið kveikjan að hug­mynd­inni að trans fán­anum á torg­inu.

„Við lifum á athygl­is­verðum tímum, vægt til orða tekið. Í mörgum löndum heims fara rétt­indi hinsegin fólks aft­urá­bak og það er orðið ljóst að innan fjöl­skyldu okkar er einn hópur sér­stak­lega tek­inn fyrir: trans fólk. Það sem er að ger­ast með rétt­indi trans fólks í Banda­ríkj­unum, ný mis­mun­un­ar­lög­gjöf í Bret­landi og nýlegar fréttir af árásm hér á Íslandi eru full­kom­lega óásætt­an­legar,“ segir Diego.

„Þess vegna ætlum við í ár að mála regn­bog­ann á Silf­ur­torgi í litum trans fán­ans. Það er tákn­ræn en sjón­rænt öflug leið til að sam­ein­ast um einn hóp, þann sem er útsett­astur, og segja af ein­urð: Réttindi trans fólks eru líka okkar rétt­indi!“

Að hans mati er tíma­bært og við­eig­andi að fram­kvæma þessa athöfn á IDAHOBIT-dag­inn ( Alþjóð­legi dag­ur­inn gegn hómó­fó­bíu, bífó­bíu og trans fóbíu), 17. maí.

„Því nú, meira en nokkru sinni, þurfum við að finna von í mann­kyn­inu, sem virð­ist hafa beygt inn á braut hat­urs og kúg­unar,“ segir Diego að lokum.
„Við vonum að þetta litla fram­tak okkar, úr litla bænum okkar við afskekktan fjörð, geti veitt öðrum inn­blástur og þá von sem við öll þurfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil