Karlmaður sem fannst látinn í sjónum út af Örfirisey eftir hádegi í dag er talinn vera sami maður og var saknað frá því síðdegis í gær, en hann var erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu
Tilkynnt var um hvarf mannsins, sem var í sjósundi, um hálffimmleytið í gær og hófst þegar viðamikil leit að honum með þátttöku fjölda viðbragðsaðila. Leitað var að manninum fram á kvöld, en án árangurs. Leit hófst að nýju eftir hádegi í dag og lauk henni þegar maðurinn fannst látinn eins og áður var getið.































Athugasemdir