Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ragga nagli segist ekki tileinka sér danska siði sem innflytjandi

„Hættum að ala á skautun, tor­tryggni og útlend­inga­hatri.“

Ragga nagli segist ekki tileinka sér danska siði sem innflytjandi
Ragga nagli Naglinn hvetur til sam­kenndar og náunga­kær­leika. Mynd: Aðsend

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, sál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari, betur þekkt sem Ragga nagli vekur athugli á því í nýrri Facebook-færslu að hún sé inn­flytj­andi í Danmörku sem hefur ekki til­einkað sér danska siði nema að litlu leyti.

Inn­flytj­enda­mál hafa verið mikið í umræð­unni á Íslandi þessa dag­ana en um síð­ustu helgi voru haldin mót­mæli gegn stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í útlend­inga­málum en í ræðum sem haldnar kom fram að fólk sem aðhyllt­ist Íslams­trú væri sá hópur sem mót­mæl­endur ótt­uð­ust hvað mest hér á landi, án þess þó að hald­bær rök væru færð fyrir því.

Í færsl­unni sem Ragga birti í dag, talar hún um sig í þriðju per­sónu en þar blandar hún sér í inn­flytj­enda­um­ræð­una. Færslan hefst á eft­ir­far­andi orðum:

„Naglinn er inn­flytj­andi.
Sextán ár búsett í Bauna­landi.
Talar ófull­komna dönsku með hreim.
Ólst ekki upp í dönskum kúltúr.
Og hefur ekki til­einkað sér siði og venjur Danans nema að örlitlu leyti.“

Ragga telur síðan upp ýmis­legt sem hún ætti að gera til að til­einka sér danska siði og nefnir til dæmis það að hún þekki ekki einn danskan áhrifa­vald og hlusti ekki á danska tón­list nema þá sem er frá níunda og tíunda ára­tugnum. Þá seg­ist hún ekki fagna Mortensaf­ten, ekki éta kran­sa­köku á gamlárs­kvöld né baka bollur á Stóra bæna­deg­inum, svo fátt eitt sé nefnt.

Þá segir Ragga aðal­lega Íslend­inga vera í vina­hópnum hennar og að hún fari á íslensk þorra­böll, jóla­böll og þrett­ánda­gleði. Aukreitis seg­ist hún aldrei halda með Danmörku í fót­bolta og að henni finn­ist Danir of grobbnir og kok­hraustir fyrir hvern knatt­spyrnu­leik.

Þá seg­ist hún hafa kom­ist í kast við lögin úti

„Naglinn hefur kom­ist í kast við lögin í Danmörku og var tekin af politim­and fyrir að keyra á 70 km hraða þar sem hámarks­hraði var 50 km/h.“

Bætir hún við:

„Hinum megin göt­unnar eru fjöl­býl­is­hús þar sem 99% eru inn­flytj­endur frá Tyrk­landi, Írak, Íran, Pakistan. Í næstu götu ein stærsta moskan á Norð­ur­brú, og streyma þangað kufla­k­lætt íslamstrúað fólk mörgum sinnum á dag, og í unn­vörpum á föstu­dögum. Aldrei upp­lifað vesen af þessu návígi við önnur trú­ar­brögð og menn­ingu.“

Naglinn talar einnig um ást sína á kebabstað á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn sem og á kræs­ingum frá Víetnam, Indlandi, Tælandi og fleiri löndum.

Ragga telur því næst upp fræga inn­flytj­endur í mann­kyns­sög­unni:

„Jón Sig­urðs­son var inn­flytj­andi í Danmörku.
Albert Einstein og Arnold Schwarzenegger inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum.
Freddie Mercury inn­flytj­andi í Bret­landi.
Zlatan Ibrahimovic er inn­flytj­andi í Svíþjóð.
Hefðu þessar þjóðir viljað segja þeim að drulla sér heim útlend­inga­pakk?“

Bæti hún við að ef ekki væri fyrir inn­flytj­endur á Íslandi væri ekki „marokkóskur veit­inga­staður á Siglu­firði, Nings á Suð­ur­lands­braut, Vietnam á Lauga­vegi og Mandí í Skeif­unni.“

Ragga seg­ist síðan aldrei finna fyrir útlend­inga­andúð gagn­vart sér í Danmörku:

„Enginn Dani hefur sagt óum­beðið í kommenta­kerfi að Íslend­ingar séu afætur og óþjóða­lýður og ættu að hund­skast heim til sín.
Ekki ein ein­asta hræða hefur sagt við Naglann: “Þú ert ekki vel­komin hér útlend­ingaó­geð”.
Aldrei fengið yfir sig hol­skeflu fúk­yrða fyrir að hafa ekki aðlag­ast dönsku sam­fé­lagi og tekið upp þeirra siði og venjur. Þjóð­ern­is­remb­ing­ur­inn er af sauða­húsi nas­ista í orð­ræð­unni hjá virkum í athuga­semdum.“

Að lokum kemur Ragga nagli með skila­boð til Íslend­inga þar sem hún hvetur til þess að fólk sýni náunga­kær­lega og grafi eftir sam­kennd og virð­ingu:

„Hættum að ala á skautun, tor­tryggni og útlend­inga­hatri.
Gröfum frekar eftir sam­kennd og virð­ingu.
Sýnum náunga­kær­leika og komum fram við inn­flytj­endur á Íslandi eins og við viljum að sé komið fram við okkur þegar við tökum okkur búsetu á erlendri grund.
Fjöl­menn­ing gerir mann­lífið lit­rík­ara og fjöl­breytt­ara og úðar yfir okkur víð­sýni og þroska.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ