Strætó mun auka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.
Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031.

Samkvæmt Strætó er markmiðið að auka notkun almenningssamgangna, bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni, venja fólk við tíðni framtíðarinnar og draga úr umferð með auknum valkostum við einkabílinn































Athugasemdir