Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ánægja með Árbakka

Sól­stöðu­há­tíðin Árbakk­inn verður haldin á morgun klukkan 18 á úti­vist­ar­svæð­inu í Nesi á Hellu

Ánægja með Árbakka
Líf og fjör og hell­ing af tón­list Í boði á Hellu á laug­ar­dag­inn frá klukkan 18-21 Mynd: Bjarki Eiríksson.

Sól­stöðu­há­tíðin Árbakk­inn verður haldin næst­kom­andi laug­ar­dag á fjöl­skyldu- og úti­vist­ar­svæði í Nesi á Hellu frá klukkan 18-21.

Á þess­ari splunku­nýju hátíð mun tón­list­ar­fólk frá Hellu, Hvols­velli og nágrenni koma fram og er aðgangur ókeypis á hátíð­ina og eru allir vel­komnir og meira en það:

„Ég var að rúnta með yngsta strák­inn minn um Hellu í lok febr­úar. Þegar ég keyrði fram­hjá úti­vist­ar­svæð­inu í Nesi þá hugs­aði ég með mér að þarna gæti verið gaman að halda tón­leika að sumri til,“ segir Bjarki Eiríks­son, skipu­leggj­andi hátíð­ar­innar, í sam­tali við sunn­lenska.is.

Hann bætir því við að „hug­myndin lét mig ekki í friði og eftir að hafa borið hana undir nokkra vini mína ákvað ég að sum­ar­sól­stöður yrðu fyrir val­inu. Ég gekk þá skref­inu lengra og byrj­aði að sækja leyfi til sveit­ar­stjórnar og um styrki í sam­fé­lags­sjóði og til fyr­ir­tækja á svæð­inu. Allir tóku vel í upp­á­tækið og hér erum við í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum upp á sól­stöður með þessu móti en miðað við hve vel við skemmtum okkur á æfingum er von­andi að þetta verði að árlegum við­burði.“

Í Rang­ár­valla­sýslu býr óneit­an­lega margt hæfi­leik­a­ríkt fólk, og eiga þeir lista­menn sem koma fram á hátíð­inni allir það sam­eig­in­legt að vera af svæð­inu:

„Lista­menn­irnir eru flestir búsett á Hellu, Hvols­velli og nær­sveitum eða eiga teng­ingu við svæðið. Við erum átta tals­ins sem komum fram ásamt gesta­söngv­urum og hljóm­sveit, Sól­stöðu­band­inu, sem spilar undir,“ sagði Bjarki.

Umræddir lista­menn sem koma fram eru þau Bryn­hildur Sig­hvats­dóttir, Dana Ýr Ant­ons­dóttir, Finnur Bjarki Tryggva­son, Fríða Hansen, Glódís Margrét Guð­munds­dóttir, Kristinn Ingi Austmar, Stefán Orri Gíslason, auk Bjarka:

„Við hefjum leik um sex­leytið á laug­ar­dag­inn sem hentar barna­fólki. Létt­leik­andi popp- og rokktón­list í óraf­mögn­uðum stíl verður í fyr­ir­rúmi. Við munum bjóða upp á alls­konar lög sem skapa sum­ar­lega og létta stemn­ingu. Stemn­ingin fyrir hátíð­inni er góð. Við finnum fyrir miklum með­byr og fólk á svæð­inu er áhuga­samt um hátíð­ina og fagnar frum­kvæð­inu. Ég vil þakka bak­hjörlum hátíð­ar­innar fyrir að hjálpa okkur að gera þetta að veru­leika. Svo hvetjum við að sjálf­sögðu öll sem eiga heim­an­gengt að mæta á laug­ar­dag­inn og fagna sól­stöðum með söng, gleði og sam­neyti við vini og fjöl­skyldu,“ sagði Bjarki að end­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil