Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Halda „Burning Man” á Snæfellsnesi

Aðstand­endur Secret Solstice til­kynna tón­listar- og menn­ing­ar­há­tíð á almyrk­v­anum næsta sumar

Halda „Burning Man” á Snæfellsnesi
Þjóð­garðsmið­stöðin á Hell­issandi Hátíðin Iceland Eclipse verður frá­brugðin Secret Solstice og meira í anda Burning Man. Mynd: Snæfellsjökullsþjóðgarður

Aðstand­endur Secret Solstice hafa til­kynnt um nýja tón­listar- og menn­ing­ar­há­tíð næsta sumar undir nafn­inu Iceland Eclipse. Hátíðin verður haldin í sam­starfi við banda­ríska fyr­ir­tækið Immersive Experiences, í kringum almyrk­vann 12. ágúst. Besta sjón­ar­hornið á almyrk­vann mun vera á Vest­ur­landi, svo hátíðin verður haldin á Hell­issandi en búist er við mörgum ferða­mönnum á svæð­inu á þessum tíma.

Kári Við­ars­son frá Hell­issandi og Jón Bjarni Steins­son, einn skipu­leggj­enda, ræddu um hátíð­ina á Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Þeir segja tón­list­ar­há­tíð­ina ólíka Secret Solstice á marga vegu þar sem hún verður ekki rokk­há­tíð og áhersla verður lögð á menn­ing­ar­há­tíð­ina sam­hliða. „Fyrir þá sem þekkja, ímynd­aðu þér Burning Man á Snæ­fells­nesi … það verður jóga­kennsla og hug­leiðslu­tjöld, fyr­ir­lestrar og alls konar vinnu­stofur.“

Burning Man er alræmd hátíð sem hefur verið haldin árlega á mis­mun­andi stöðum í eyði­mörk Banda­ríkj­anna í nokkra ára­tugi. Upptök hátíð­ar­innar var hjá gras­rót­ar­lista­mönnum í San Fransisco sem komu saman í kringum hug­myndir um sjálf­bærni, umburð­ar­lyndi, anar­k­isma og list­ræna sköpun. Áratugum seinna hafa skila­boð hátíð­ar­innar verið útþynnt. Nú flykkj­ast millj­arða­mær­ingar frá Silicone Valley á hátíð­ina á einka­þotum sínum, svo sem Elon Musk og Mark Zuckerberg. Aðgerða­sinnar hafa mót­mælt harð­lega nei­kvæðu umhverf­is­á­hrifum hátíð­ar­innar und­an­farin ár og segja rætur hátíð­ar­innar hafa glat­ast.

Miðarnir á hátíð­ina verða hámark 5.000 og búist er við að þeir verði nokkuð dýrir. Dagskrá hátíð­ar­innar mun fara fram 12.-15. ágúst 2026 og fjöl­breytt gisti­rými verða í boði svo sem tjald­svæði, hús­bílar og gisti­rými. Að sögn Kára og Jón Bjarna hafa við­tök­urnar verið góðar hjá íbúum Hellisands og Snæ­fellsbæ.

Secret Solstice var haldin í Laug­ar­dalnum frá 2014 til 2019. Tón­list­ar­há­tíðin var vin­sæl en var þó ekki óum­deild. Íbúar í nærum­hverfi hátíð­ar­innar kvört­uðu undan hávaða og fíkni­efna­mál voru tíð á hátíð­inni.

Vin­sældir Secret Solstice döl­uðu þegar í ljós koma að margir lista­menn og verk­takar hefðu ekki fengið greitt frá Solstice Productions, fyr­ir­tæk­inu á bak við hátíð­ina. Fremst var þar banda­ríska rokk­hljóm­sveitin Slayer sem stefndi Solstice Productions fyrir að greiða hljóm­sveit­inni ekki fyrir fram­komu þeirra á Secret Solstice árið 2018. Solstice Productions varð gjald­þrota árið 2021 með 337 millj­ónir króna í skuldum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil