Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lýsir „óviðunandi“ aðstæðum á vistheimili, þaðan sem starfskona hvarf

María Lilja tók vakt á vist­heim­il­inu Bjargi og afhjúpar aðstæður þar.

Lýsir „óviðunandi“ aðstæðum á vistheimili, þaðan sem starfskona hvarf
Skóla­braut 10 Vist­heim­ilið Bjarg var lengi rekið af Hjálp­ræð­is­hernum, en er nú rekið af einka­hluta­fé­lagi. Mynd: Já.is

Síðasta laug­ar­dag lýsti Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir konu sem hafði lokið vakt á til­teknum vinnu­stað klukkan 9 að morgni og „skil­aði sér ekki heim“. Konan hafði verið að vinna á vist­heim­ili geð­fatl­aðra, sem heitir Bjarg og er stað­sett við Skóla­braut á Sel­tjarn­ar­nesi.

Nú hefur María Lilja Þrast­ar­dóttir Kemp hins vegar skrifað grein á frétta­vef Sam­stöðv­ar­innar um reynslu sína af því að starfa við „óvið­un­andi aðstæður“ á vist­heim­il­inu. Hún segir fyrr­greinda konu hafa unnið sól­ar­hringum saman. Konan kom í leit­irnar um kvöldið og er sam­kvæmt full­yrð­ingu í grein­inni á Sam­stöð­inni komin í veik­inda­leyfi.

Vinnu­á­lag kon­unnar sem hvarf er ekki eins­dæmi, sam­kvæmt grein Maríu Lilju. Þannig hafi vin­kona Maríu Lilju unnið sam­fleytt í 32 klukku­stundir áður en María leysti hana af á mánu­dag.

María Lilja Ing­veldur Þrasta­dóttir KempMaría Lilja segir neyð­ar­á­stand ríkja á Bjargi, sem er vist­heim­ili fyrir geð­fatl­aða.

„Þrátt fyrir ein­hverja reynslu frá fyrri árum fóru um mig ónot að vera ein í hús­inu sem er stórt og mikið. Það var ekki vegna hræðslu við heim­il­is­menn heldur vegna þess sem ég varð áskynja við á yfir­ferð minni um hús­næðið. Þar var áber­andi óhreint, ólykt og til­finn­an­legur skortur á helstu gæðum góðs heim­ilis,“ skrifar hún á Sam­stöð­inni.

Þrjátíu og tvær klukku­stundir á vakt

„Þegar ég kom á vakt­ina á mánu­dags­kvöld tók ég við af áður­nefndri vin­konu sem hafði þá verið á svæð­inu við almenn umönn­un­ar­störf í þrjá­tíu og tvær klukku­stundir án hlés. Hún er menntuð í öðru, vinnur ann­ars staðar en hjá sama fyr­ir­tæki og rekur Bjarg; Mann­virð­ingu ehf. Vinkonan hafði fyrir til­viljun flækst inn í starf­sem­ina á föstu­degi þegar hún kom þangað að sinna öðrum erindum. Hún komst að því þá að for­stöðu­kona Bjargs sem jafn­framt er annar tveggja eig­anda Mann­virð­ingar, hafði verið með við­veru á Bjargi meira og minna allan sól­ar­hring­inn svo dögum skipti. Hún kenndi í brjósti um [hana] sem var að vonum þreytt og bauðst til að leysa hana af í fáeina tíma svo [hún] gæti skroppið heim til sín, farið í sturtu og hvílt sig aðeins.“ María Lilja kveðst hafa heim­ildir fyrir því að konan hafi farið í veik­inda­leyfi.

María lýsir aðstæðum íbú­anna á Bjargi.

„Alvar­leg­ast verða að telj­ast aðstæður eins íbú­ans sem hefur algjöra, skerta hreyfi­getu vegna hrörn­unar og er rúm­liggj­andi á annarri hæð húss­ins. Fastur inni á her­bergi því aðgeng­is­mál húss­ins bjóða ekki uppá annað. Engin við­eig­andi stoð­tæki voru til í hús­inu, ekki hjóla­stóll til umráða og engin sal­erni í her­bergjum. Notast er við handafl til að færa mann­inn í hæg­inda­stól þar sem hann dvelur jafnan á dag­inn og horfir á bíó­mynd eða hlustar á hlað­varp sem starfs­fólk setur fyrir framan hann á ipad. Hann er svo færður eins til­baka á kvöldin.“

Hún vitnar til orða eig­and­ans um að mað­ur­inn biði búsetu ann­ars staðar.

„Hann kvað ábyrgð­ina ekki sína eða Mann­virð­ingar ehf. sótt hefði verið um hjúkr­un­ar­rými fyrir íbú­ann og þess beðið að hann kæm­ist að á elli­heim­ili. Ástæðan lægi því eins og í öðru hjá hinu opin­bera og/eða Sel­tjarn­ar­nesbæ og títt­um­ræddum seina­gangi kerf­is­ins.“

Vist­heim­ilið oln­boga­barn

Vist­heim­ilið hefur síð­ustu ár verið oln­boga­barn í kerf­inu, sem og íbúar þess. Eftir að hafa verið rekið af Hjálp­ræð­is­hernum í áraraðir tók einka­hluta­fé­lagið Mann­virð­ing við rekstr­inum tíma­bundið árið 2018. „Árið 2011 fól ráðu­neytið Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga ábyrgð á fjár­mögnun vist­heim­ila. Síðan þá hefur staðið styr um hverjir raun­veru­lega beri ábyrgð á vist­mönnum Bjargs, karl­mönnum á efri árum með geð­klof­a­grein­ingu sem hafa búið þar síðan átt­unda og á níunda ára­tug síð­ustu aldar,“ skrifar María Lilja.

María Lilja seg­ist í grein sinni ekki kenna einka­rekstri eða ákveðnum per­sónum um aðstæð­urnar. Hún seg­ist fjalla um „sinnu­leysi, lélegt utan­um­hald, gegn­um­gang­andi og kerf­is­læga óvirð­ingu í garð fatl­aðs fólks og mann­fjand­sam­legt kerfi sem fjársvelt reiðir sig á útvist­anir sjálf­sagðrar almenn­ings­þjón­ustu“. Þá segir hún starfs­fólk gera sitt besta.

Grein Maríu Lilju má lesa á vef Sam­stöðv­ar­innar.

Ekki náð­ist í eig­endur Mann­virð­ingar ehf. við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð