Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bendir á áhuga Guðrúnar á ESB fyrir ellefu árum

„Vissu Sjálf­stæð­is­menn um þennan vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin for­maður flokks­ins?“

Bendir á áhuga Guðrúnar á ESB fyrir ellefu árum
Guðrún Haf­steins­dóttir Guðrún skoðar eitt­hvað merki­legt í síma aðstoð­ar­manns síns Mynd: Víkingur

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son kastar fram bombu, ef svo má að orði kom­ast, í nýrri Facebook-færslu. Þar bendir hann á tví­skinn­ungs­hátt Guðrúnar Haf­steins­dóttur varð­andi Evr­ópu­sam­bands­við­ræður Íslands.

„Guðrún Haf­steins­dóttir for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins birti kost­aða færslu á Facebook í til­efni heim­sóknar Ursulu von der Leyen, fram­kvæmd­ar­stjóra ESB til Íslands, þar sem hún segir heim­sókn­ina vera með­vit­aða póli­tíska yfir­lýs­ingu og sagði meðal ann­ars eft­ir­far­andi:

Við í Sjálf­stæð­is­flokknum höfum alltaf lagt ríka áherslu á gott og fag­legt sam­starf við önnur ríki og alþjóða­stofn­anir. En við gerum skýran grein­ar­mun á sam­starfi og yfir­ráðum. Ísland á ekki að láta aðra móta stefnu okkar í sjáv­ar­út­vegi, orku­málum, eða varn­ar­málum. Það er okkar að gera það.

Við munum ekki sitja hljóð og horfa á meðan þessu er stýrt áfram með þöglu sam­þykki. Við ætlum að leiða umræð­una um þessi stóru mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun standa vörð um hags­muni Íslands. Við viljum fram­tíð byggða á frelsi, ábyrgð og traustri þátt­töku í alþjóða­sam­fé­lag­inu - en á for­sendum þjóð­ar­innar sjálfrar.“

Svar Björns

„Guðrún Haf­steins­dóttir vildi verða for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins 2014 og henni tókst það út á boð­aða stefnu sína, meðal ann­ars að hún vildi ljúka aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og láta þjóð­ina kjósa um aðild­ar­samn­ing.“ Björn byrjar færslu sína á þennan hátt en hún hefur vakið tals­verða athygli á Facebook.

Rifjar Björn upp kosn­ingar um for­mann Samtaka iðn­að­ar­ins árið 2014:

„Í kosn­ing­unni um for­mann Samtaka iðn­að­ar­ins 2014 voru tveir fram­bjóð­endur í kjöri:

Guðrún Haf­steins­dóttir, mark­aðs­stjóri Kjörís og stjórn­ar­maður í SI.

Svana Helen Björns­dóttir, þáver­andi for­maður stjórnar SI og stofn­andi/stjórn­ar­for­maður Stika ehf.

Á aðal­fundi SI sem hald­inn var í Laug­ar­dals­höll þann 6. mars 2014 var mjög jöfn keppni milli Guðrúnar og Svönu.

Guðrún fékk 52,4 % (106.151 atkvæði)
Svana Helen fékk 43,8 % (88.684 atkvæði)
Aðrir fengu 3,8 % atkvæð­anna.

Því var Guðrún Haf­steins­dóttir kjörin for­maður SI, með tæp­lega 8 pró­sentu­stiga for­skoti.“

Segir hann Guðrúnu hafa lýst afstöðu sinni á skýran hátt fyrir kosn­ingar, til aðil­ar­við­ræðna við ESB.

„Guðrún lýsti afstöðu sinni skýrt í ræðu fyrir kosn­ingu, þar á meðal varð­andi aðild­ar­við­ræður við ESB, afnám virð­is­auka­skatts á vinnu iðn­að­ar­manna, ein­földun skatt­kerfis og efl­ingu átaks­ins “Allir vinna” til að draga úr svörtum vinnu­mark­aði.

Guðrún gegndi svo for­mennsku hjá Samtökum iðn­að­ar­ins frá mars 2014 til árs­ins 2020.“

Því næst vitnar Björn í orð Guðrúnar um hið mikla hita­mál sem aðild­ar­um­sókn að ESB er:

„Guðrún sagði í til­kynn­ingu um fram­boðið 2014 að hún vildi ljúka aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og kjósa um aðild­ar­samn­ing.

Í til­kynn­ingu hennar sagði orð­rétt:

„Ná þarf sem hag­stæð­ustu samn­ingum fyrir allar atvinnu­greinar og almenn­ing og leggja nið­ur­stöð­una í dóm kjós­enda í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Ég treysti dóm­greind þjóð­ar­innar í þessu stóra máli.

Afnema ætti virð­is­auka­skatt af vinnu iðn­að­ar­manna á bygg­ing­ar­stað. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að minnka svarta vinnu og ég vil festa í sessi átakið „Allir vinna“.

Þá þarf að ein­falda reglu­verk atvinnu­lífs­ins og stóran hluta skatt­kerf­is­ins.

End­ur­skoða þarf VSK-skatt­kerfið frá grunni. Við þurfum hag­fellt skatt­kerfi og hvata fyrir nýsköpun og skap­andi greinar.

Ég vil end­ur­skoða tolla- og vöru­gjalda kerfið. Það stendur íslenskum iðn­aði stór­lega fyrir þrifum og hækkar verð­lag í land­inu. Þetta er afleitt kerfi sem skilar litlu.

Við verðum að koma fjár­fest­ingum af stað og það verður að lækka vexti.

Þetta háa vaxta­stig er mein­semd í íslensku sam­fé­lagi.

Gera þarf átak á sviði sam­göngu­fram­kvæmda og Samtök iðn­að­ar­ins þurfa að vinna með stjórn­völdum að því marki.

Þá er aldrei of oft sagt að það er for­gangs­mál að losa landið úr gjald­eyr­is­höftum.

Breiddin í Samtökum iðn­að­ar­ins er mikil og við þurfum að gæta hags­muna allra, smárra jafnt sem stórra fyr­ir­tækja.“

Að lokum spyr Björn Sjálf­stæð­is­menn hvort þeir hafi vitað um vilja Guðrúnar er hún hlaut kosn­ingu sem for­maður flokks­ins:

„Vissu Sjálf­stæð­is­menn um þennan vilja Guðrúnar þegar hún var kjörin for­maður flokks­ins?

"Ná þarf sem hag­stæð­ustu samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið fyrir allar atvinnu­greinar og almenn­ing og leggja nið­ur­stöð­una í dóm kjós­enda í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu".“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum