Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Leigubílstjórinn hræddur um öryggið sitt á Íslandi og íhugar að flytja úr landi

„Hatrið er of mikið,“ segir erlendur leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík.

Leigubílstjórinn hræddur um öryggið sitt á Íslandi og íhugar að flytja úr landi
Leigu­bíll á Ing­ólfs­torgi Leigu­bíl­stjórar af erlendum upp­runa segj­ast finna fyrir auknu áreiti og kyn­þátta­for­dómum. Mynd: Víkingur

Mor sem er leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík, upp­runa­lega frá Senegal, seg­ist taka eftir auknu áreiti gagn­vart bíl­stjórum af erlendum upp­runa. „Upp á síðkastið, ekki bara frá sein­ustu helgi, heldur sein­asta árið,“ segir hann í við­tali við Mannlíf, þar sem hann bíður í leigu­bíla­röð­inni við Ing­ólfs­torg.

Mor hafði fundið sig í miðri atburða­rás sem vakti upp mikla umræðu um þróun íslensks sam­fé­lags eftir síð­ustu helgi.

„Það sem við sáum sein­ustu helgi var óásætt­an­legt,“ segir Mor og lýsir því hvernig með­limir úr hópnum Skjöldur Íslands komu á Ing­ólfs­torg og hreyttu fúk­yrðum í leigu­bíl­stjóra af erlendum upp­runa. Hann segir lög­regl­una hafa horft á áreitið en ekk­ert gripið inn í.

Sjálfur seg­ist hann hafa keyrt fram hjá Ing­ólfs­torgi þegar Skjöldur Íslands stóð við torgið. „Ég er frið­samur maður svo ég sagði: Veistu, ég ætla ekki að blanda mér í þetta og ég ætla bara að koma mér burt,“ sagði Mor.

Mor er flótta­maður frá Senegal en hefur búið á Íslandi í 16 ár og á hálf­ís­lenska dóttur. Hann hefur verið leigu­bíl­stjóri í tvö ár en vegna auk­innar áreitni og kyn­þátta­for­dóma upp­lifir hann sig ekki öruggan á Íslandi lengur. Hann seg­ist íhuga það alvar­lega að flytja aftur til Senegals og hætta umsókn sinni um rík­is­borg­ara­rétt. „Það sem við sjáum í dag er ekki gott, ég hef alltaf lofað Ísland fyrir að vera örugg­asta landið, en þetta er mjög dap­urt núna. Mér finnst ég ekki öruggur,“ segir Mor.

Aðsúgur að honum fyrir að vera dökkur á hörund

Á mánu­dag greindi Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur og fjöl­miðla­kona, frá því í Facebook-færslu hvernig hópur manna hefði verið að áreita leigu­bíl­stjóra við Ing­ólfs­torg þegar hún þurfti að taka leigu­bíl. Menn­irnir vör­uðu hana við að setj­ast í bíl­inn með bíl­stjór­anum þar sem hann var dökkur á hör­und og gæti gert henni eitt­hvað. Auður sagð­ist hafa átt gott sam­tal við leigu­bíl­stjór­ann á meðan að ferð­inni stóð. Bíl­stjór­inn kom upp­runa­lega frá Senegal en hafði búið á Íslandi í mörg ár og ætti nú hér barn og konu. Hann sagði Auði að áreiti frá ras­istum hefði færst í auk­ana og hann hafði áhyggjur af öryggi dóttur sinnar.

„Hann sagð­ist þá hafa haldið að ég væri með þessu fólki svo hann hefði læst bílnum. Við keyrðum af stað og ég fór að spyrja hann út í þetta. Þá hafði fólk þetta gert aðsúg að honum fyrir það eitt að vera dökkur á hör­und að keyra leigu­bíl,“ lýsti Auður.

„Ég hef alltaf lofað Ísland fyrir að vera örugg­asta landið“
Leigu­bíl­stjór­inn Mor

Áreitnin komi mest frá bílstjórum Hreyfils

Fyrsta árið keyrði Mor fyrir Hreyfil sem hark­ari eða afleys­ing­ar­bíl­stjóri og hafði þess vegna ekki jafn rík rétt­indi eða tekjur eins og leigu­bíl­stjórar hjá Hreyfil sem hafa rekstr­ar­leyfi. Hann sagði að Hreyfill hafa ekki viljað gefa honum tæki­færið á að fá eigið rekstr­ar­leyfi og því fór hann að vinna sjálf­stætt.

Leigu­bíla­akstur var gef­inn frjáls með nýjum lögum árið 2022. Fljót­lega upp úr því hóf hann eigin rekstur. Í kjöl­far nýrra laga gagn­rýndi fram­kvæmda­stjóri Hreyfils að leigu­bíl­stjórar gætu verið ómerktir stöðvum að störfum. Um 800 aðilar eru með rekstr­ar­leyfi fyrir leigu­bif­reiðar sem stendur.

„Auðvitað gætu verið ein­hverjir leigu­bíl­stjórar sem gera hlut­ina ekki eins og á að gera, en þeir eru ekki margir og svo geta þeir alveg eins verið íslenskir bíl­stjórar. Við getum ekki alhæft og sett alla í sama kass­ann. Þeir segja að bara þessir útlensku leigu­bíl­stjórar láta illa og þess vegna þurfi að grípa inn í,“ segir Mor.

Mor seg­ist hins vegar ekki geta starfað á vet­urna því að án ferða­manna hefur hann ekki nóg af kúnnum. „Í flestum til­fellum þegar Íslend­ingar sjá að við keyrum ekki fyrir Hreyfil, þá vilja þau ekki taka okkur,“ sagði Mor og bætti við „auð­vitað ekki allir Íslend­ingar, en mjög margir.“

Þá lýsir Mor einnig hvernig mikið af áreit­inu komi frá leigu­bíl­stjórum Hreyfils. Hún hafi færst í auk­ana. „Þegar starfs­menn Hreyfils sjá okkur hata þeir okkur um leið og byrja að móðga okkur. Stundum segja þeir að við ættum ekki vera hérna, eitt­hvað svo­leiðis, að við þurfum að losa okkur við þessa útlend­inga,“ lýsir Mor.

Á meðan við­tal­inu stóð flaut­aði óþol­in­móður bíl­stjóri frá Hreyfil á Mor um að færa sig framar í bíla­röð­inni. Mor sagði bíl­stjór­ann ekki hafa þurft að flauta en þeir sýni minni virð­ingu til erlendra bíl­stjóra sem starfa ekki hjá Hreyfil.

Veru­leiki erlendra leigu­bíl­stjóraViðtal við Mor er truflað þegar íslenskur leigu­bíl­stjóri flautar á hann.

Mor seg­ist elska Ísland mikið og eiga erfitt með að fara. „Ísland er frá­bært, það er mjög rólegt og afslappað. Þú veist „þetta redd­ast“ og allt það. Mjög öruggt og mjög góður staður til að stofna fjöl­skyldu“ sagði hann en lýsti hvernig auknir kyn­þátta­for­dómar og áreiti sé að gera hann óvissan um öryggið sitt. „Hatrið er of mikið,“ segir Mor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð