Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hvers konar skilaboð eru það að refsa ungmennum fyrir það sem er gert vel?“

„Þau eru fram­tíðin – en fá ekki að njóta nú­tím­ans“ segir fyrrum nem­andi Verzlunarskóla Íslands og fram­halds­skóla­full­trúi Ungs jafn­að­ar­fólks, Sigurður Kári

„Hvers konar skilaboð eru það að refsa ungmennum fyrir það sem er gert vel?“
Sigurður Kári Vill að börn og ungt fólk fái að njóta sín í líf­inu

„Þau eru fram­tíðin – en fá ekki að njóta nú­tím­ans“ segir fyrrum nem­andi Verzlunarskóla Íslands og fram­halds­skóla­full­trúi Ungs jafn­að­ar­fólks, Sigurður Kári.

Hann vitnar í grein á Vísi þar sem þetta var sagt:

„Þetta var auð­vitað rosa­lega mikil truflun, partí og mikil læti. Þess vegna ætlum við ekki að gera þetta aftur. En í raun og veru voru engin vand­ræði, engin slags­mál og ekki neitt.”

Sigurður Kári útskýrir málið og segir að orðin hér að ofan hafi komið frá eig­anda tjald­svæð­is­ins að Hraun­borgum í sam­tali við blaða­mann Vísis í kjöl­farið á árlegri úti­legu nem­enda við Verzlunarskóla Íslands, er haldin var á svæð­inu.

„Í þess­ari úti­legu voru um 400 ung­menni sem komu saman í þeim til­gangi að hafa gaman, skemmta sér og hitt­ast í sum­ar­frí­inu“ segir hann og nefnir einnig að auð­vitað megi „búast við að svona sam­komum fylgi hávaði, enda um stóran hóp af fólki að ræða.“

Sigurður Kári færir í tal að eig­andi tjald­svæð­is­ins „sagð­ist sjálfur hafa látið aðra gesti vita af fyr­ir­hug­aðri sam­komu ung­menn­anna“ og segir hann einnig að það „var búið að sjá fyrir öllu, hvort sem það var gæsla eða afmarkað svæði.“

Segir Sigurður Kári að áður­nefndur eig­andi hygg­ist eigi ætla að leigja svæðið aftur út vegna hávaða sem fylgdi gleði og lífi.

Og þá spyr hann:

„Hvers konar skila­boð eru það að refsa ung­mennum fyrir það sem er gert vel?“

Hann hefur sjálfur farið tví­vegis í þessa úti­legu og að þá hafi allt gengið „mjög vel“ því það hafi verið „gæsla á svæð­inu“ sem var vel afmarkað og „við fengum skýr fyr­ir­mæli um það sem ekki mátti gera.“

Sigurður Kári nefnir að það fylgi ávallt „smá hávaði svona stórum við­burði en við hlýddum og fórum eftir fyr­ir­mælum“ og bendir einnig á að það hafi ekk­ert vesen verið og „engin vand­ræði, en hávað­inn fylgdi gleði og góðri stemn­ingu.“

Að mati hans er Verzlingum meira en vel „treystandi fyrir því að koma aftur á næsta ári“ en að nú þurfi „nem­endur að leita að nýju tjald­svæði þar sem má von­andi hafa gaman.“

Sigurður Kári færir sig síðan frá hinu sér­tæka til hins almenna og skoðar mynd­ina í raun og veru úr „lofti“ ef svo mætti segja og hann vill ein­fald­lega að börn og ungt fólk megi alveg njóta sín án þess að eiga það sífellt á hættu að fá ákúrur og skammir fyrir það eitt að vera lif­andi, lífs­glöð og ham­ingju­söm:

„Nýlega birt­ist frétt þess efnis að börn mættu ekki leika sér í bolta­leik eftir klukkan 22 við Hlíða­skóla og þetta er staðan víðar, vænt­an­lega vegna hávaða sem þessum leikjum kann að fylgja.“

Segir einnig:

„Það liggur í hlut­ar­ins eðli að þegar börn og ung­menni eru að leika sér úti eru læti.“

Hann bætir því við að þegar hann var yngri „skemmtum við okkur krakk­arnir kon­ung­lega upp á sparkvelli, körfu­bolta­velli eða á skóla­lóð­inni, og það var stundum eftir klukkan 22.“

Sigurður Kári seg­ist ekki muna „eftir að hafa séð nein skilti sem bönn­uðu okkur að hitt­ast eftir ákveð­inn tíma“ en að því hafi fylgt „ein­hver læti og hávaði, en það er einmitt með því að hitt­ast og leika sér saman sem tengslin mynd­ast, sem vin­áttan fær að blómstra á réttum for­sendum.“

Og hann spyr af hverju það þurfi alltaf að setja ung­mennum miklar og óþarfar skorður:

„Eru þær ekki settar af sama fólki sem finnst ung­menni vera ein­mana og grilluð í hausnum af skjá­tíma? Af hverju fá börn í dag ekki að njóta þess að vera ung eins og eldri kyn­slóðir?“

Hann bendir á að það hafi tíðkast í almennri umræðu í sam­fé­lag­inu að segja að „ung­menni séu ekki á góðum stað, að þau séu of mikið í sím­anum og þau séu ekki nógu dug­leg að vera með jafn­öldrum sínum utan skóla“ og svo loks þegar „þau ætla sér að fara út, hitt­ast og hafa gaman, til dæmis í bolta­leik er það bannað, eða þegar allt gengur vel og ekk­ert vesen en það fylgir hávaði þá er það ekki leyft aftur.“

Hann segir alveg kom­inn tíma á að leyfa „börnum og ung­mennum að lifa líf­inu“ og segir einnig að í „stað þess að tala þau niður fyrir það hversu ósjálf­stæð og óábyrg þau eru“ skulum við frekar hrósa „þeim fyrir það sem er vel gert.“

Hann telur það vera mjög gott og jákvætt að „400 manna hópur hafi komið saman án þess valda vand­ræðum eða ves­eni. Það sýnir það að þau eru að gera eitt­hvað rétt, þau eru að passa upp á hvort annað og þau eru á réttri leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð