Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig Anna hjólar í borgarstjóra vegna leikskólastarfsmannsins

„Þarna er ekki við starfs­fólk eða stjórn­endur leik­skóla að sakast – þarna ber borgin alla ábyrgð“

Sólveig Anna hjólar í borgarstjóra vegna leikskólastarfsmannsins
Sólveig Anna Jóns­dóttir Verka­lýðs­for­kólf­ur­inn er fok­ill út í borg­ar­stjóra

„Var að horfa á borg­ar­stjóra í Kast­ljósi sem sent var út í gær. Er brugðið – eins og eflaust mörgum.“ Þannig hefst ný Facebook-færsla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur for­mann Eflingar. Í færsl­unni hjólar Sólveig Anna í Heiðu Björgu Hilm­is­dóttur, borg­ar­stjóra Reykja­víkur. Borg­ar­stjór­inn var í Kast­ljósi gær­kvölds­ins til að ræða hið alvar­lega mál sem upp kom í leik­skól­anum Múlaborg en ríf­lega tví­tugur karl­maður, starfs­maður leik­skól­ans hefur nú verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni á leik­skól­anum

Sólveig Anna, sem vann í ára­tug á leik­skóla, furðar sig á orðum borg­ar­stjór­ans um að vana­legt sé að starfs­fólk sé undir sér­stöku eft­ir­liti á leik­skólum.

„Borg­ar­stjóri talar eins og það sé alvana­legt að starfs­fólk leik­skól­anna sé undir eft­ir­liti við störf. Ég vann 10 ár í leik­skóla og er í miklum sam­skiptum við starfs­fólk leik­skóla. Ég kann­ast ekki við að þá sé alvana­legt að starfs­fólk sé undir sér­stöku eft­ir­liti. Ég spyr: Hvers­vegna er starfs­fólk leik­skóla undir sér­stöku eft­ir­liti – hvað þarf að ger­ast til að starfs­maður fari undir eft­ir­lit? Hvað hafa margir sem að vinna á leik­skólum borg­ar­innar verið undir eft­ir­liti á síð­ustu árum og hvers­vegna? Hver sér um eft­ir­litið og hvernig er því háttað?“

Þá segir verka­lýðs­for­kólf­ur­inn að sér­stakar atvika­skrár séu til á leik­skólum og að Reykja­vík­ur­borg hljóti að vera með á hreinu hvaða starfs­menn hafi verið undir sér­stöku eft­ir­liti við störf sín með börnum.

„Inn á leik­skól­unum eru haldnar atvika­skrán­ingar þegar/ef eitt­hvað kemur uppá; borgin hlýtur að vera með skrán­ingu um það hvaða starfs­menn leik­skóla, sem eru mik­il­væg­ustu stofn­anir sam­fé­lags­ins, eru undir sér­stöku eft­ir­liti við störf með börnun og hvað varð til þess að eft­ir­litið var sett á.“

Þá segir Sólveig Anna það ein­fald­lega rangt, það sem Heiða Björg hafi haldið fram í Kast­ljós­inu, að starfs­fólk sé aldrei eitt með börnum.

„Borg­ar­stjóri talar eins og starfs­fólk sé aldrei eitt með börnum. Ég veit af eigin reynslu og af sam­tölum við fjöl­margt starfs­fólk leik­skól­anna að fólk vill alls ekki vera eitt með börnum, það er erfitt og stressandi. En stað­reyndin er sú að vegna þess að mann­ekla er við­var­andi vanda­mál er starfs­fólk stundum eitt með hópi barna. Það er erfitt að lenda í slíkri stöðu og auð­vitað aðeins fyrir færasta fólk með mikla reynslu að tækla án þess að upp­lifa mikla streitu.“

Segir hún borg­ina bera ábyrgð á slíku ástandi og bendir á grein þriggja leik­skóla­kenn­ara um ástandið á leik­skóla borg­ar­innar.

„Þarna er ekki við starfs­fólk eða stjórn­endur leik­skóla að sakast – þarna ber borgin alla ábyrgð á því að reka leik­skóla­kerfið okkar með við­var­andi nið­ur­skurð­ar­kröfu og með því að inn­leiða stytt­ingu vinnu­vik­unnar án þess að bæta við fjár­magni í kerfið svo hægt sé að tryggja góða mönnun og gott starfs­um­hverfi. Ég bendi á frá­bæra og slá­andi grein eftir þrjá leik­skóla­stjóra sem að birt­ist í maí, þar sem það ófremd­ar­á­stand sem ríkir á leik­skólum borg­ar­innar vegna mann­eklu er rakið með mál­efna­legum og ítar­legum hætti. Sjá hér:
https://www.visir.is/.../um-styttingu-vinnuvikunnar-i...“

Sólveig Anna segir því næst að versta martröð for­eldra sem og leik­skóla­starfs­manna hafi nú raun­gerst og að öllum sé því mjög brugðið yfir frétt­unum. Furðar hún sig á það sem hún kallar „fjar­veru póli­tískrar for­ystu borg­ar­innar í umræð­unni.“

„Okkur er öllum er mjög brugðið yfir fréttum síð­ustu daga. Það sem gerst hefur er versta martröð for­eldra og líka versta martröð þeirra frá­bæru ein­stak­linga sem að halda leik­skólum sam­fé­lags­ins gang­andi með þrot­lausri vinnu. Við erum öll sorg­mædd yfir því að þetta hafi getað gerst. Ég hef verið undr­andi á fjar­veru póli­tískrar for­ysta borg­ar­innar í umræð­unni. Mér hefur þótt skrítið að ekki séu send skýr skila­boð úr borg­ar­stjórn, skila­boð um sorg, áhyggjur og sam­hyggð með fólk­inu sem á um sárt að binda. En eftir að hafa hlustað á borg­ar­stjóra í Kast­ljósi er undrun mín meiri en áður. Engin svör, lítil sem engin inn­sýn eða þekk­ing á kerf­inu sem um ræðir, afvega­leið­ing í þeim til­gangi að láta ástandið líta betur út en það raun­veru­lega er; frammi­staðan var fyrir neðan allar hellur. Við sem að á hlýddum hljótum flest að hafa meiri áhyggjur af ástand­inu en áður, og voru þær þó veru­legar.“

Að lokum segir for­ingi Eflingar að þeir sem sæk­ist eftir völdum verði að geta axlað ábyrgð í málum sem þessum. Segir hún borg­ar­stjór­ann ekki vera þannig ein­stak­ling.

„Ein­stak­lingar sem að sækj­ast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð. Þeim ber skylda til að hafa inn­sýn í kerfin sem þeir vilja stjórna, sýn á það hvernig kerfin eiga að virka, svo að hægt sé að bæta það sem bæta þarf hverju sinni, og getu og vilja til að fram­kvæma slíkar umbætur. Þegar ég hlust­aði á borg­ar­stjóra ræða það grafal­var­lega mál sem upp er komið og það ástand sem ríkir í leik­skóla-kerfi sam­fé­lags­ins upp­lifði ég ekki að ég væri að hlusta á slíkan ein­stak­ling.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð