Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Táknrænn gjörningur, ekki morðhótun,“ segir Pétur Eggerz

„Þetta eru grafal­var­legar og ósannar ásak­anir sem skapa hættu­lega frá­sögn: að frið­söm mót­mæli séu ofbeld­is­full og að gagn­rýnin list jafn­gildi morð­hót­unum“

„Táknrænn gjörningur, ekki morðhótun,“ segir Pétur Eggerz
Pétur Eggerz Pét­urs­son Pétur er ósáttur við rang­túlk­un­ina Mynd: Aðsend

Fjölda­fund­ur­inn Þjóð gegn þjóð­ar­morði sem fram fór á sjö stöðum á land­inu síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, vakti mikla athygli, enda með fjöl­menn­ustu mót­mælum á Íslandi í langan tíma. Á fund­inum var Palest­ínska fán­anum veifað, sem og mót­mæla­skyltum og slag­orð kyrjuð á milli þess sem kraft­miklar ræður voru haldnar, gegn þjóð­ar­morð­inu á Gaza. Eitt mót­mæla­skilti vakti mun meiri athygli en önnur en við skiltið var búið að festa höfuð sem átti að líkj­ast Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra.

Í fjöl­miðlum var full­yrt að með skilt­inu væri mót­mæl­and­inn sem á því hélt, að hóta utan­rík­is­ráð­herr­anum ofbeldi og tóku nokkrir stjórn­mála­menn undir þá túlkun. Pétur Eggerz Pét­urs­son er mað­ur­inn á bak­við höf­uðið og seg­ist afar ósáttur við þessa rang­túlkun á gjörn­ingi sínum, í sam­tali við Mannlíf.

„Ég hann­aði það sem tákn­rænan gjörn­ing til að sýna hvernig ráð­herrar tala tveimur tungum um þjóð­ar­morð: segj­ast „beita sér“ en gera í raun ekk­ert,“ segir Pétur og útskýrir gjörn­ing­inn frekar: „Skiltið sýndi pappamassa­höfuð með klofna tungu og snáka­augu, og á því stóð: „Ráð­herr­ann sem gaslýsti þjóð­ar­morð“. Þetta er hefð­bundið og skýrt mynd­mál í klass­ískri mót­mæla­hefð og skila­boðin eru skrifuð með hástöfum, þetta er ekki hótun, og það er ekki séns að þeir sem hafa haldið því fram trúi því sjálfir.“

Gjörn­ing­ur­innGjörn­ing­ur­inn fór öfugt ofan í suma

Pétur seg­ist ósáttur við það hvernig bæði fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn hafi „snúið þessu upp í eitt­hvað allt annað.“

„Það sem ég er ósáttur við er hvernig fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn snéru þessu upp í eitt­hvað allt annað. Á RÚV var full­yrt í frétt að „utan­rík­is­ráð­herra var sýnd líf­láts­hótun á mót­mælum.“ Þegar ég bað um leið­rétt­ingu var mér sagt að það yrði ekki gert. Þannig var bein­línis ósönn stað­hæf­ing látin standa óleið­rétt í opin­berum frétta­flutn­ingi. Í kjöl­farið tóku áhrifa­menn og stjórn­mála­menn að vísa í þetta sem stað­reynd. Sigurður Ingi kall­aði eftir „inn­gripi“ og sagði að þetta félli ekki undir eðli­legt mál­frelsi. Sjálf­stæð­is­maður setti í morg­un­út­varpi Rásar 2 þetta í sam­hengi við morðið á Charlie Kirk. Grín­laust, hann líkti þessu saman við að skjóta póli­tískan and­stæð­ing til bana. Þor­steinn Pálsson fyrr­ver­andi for­set­is­ráð­herra lýsti því yfir að þetta hefði ekki bara verið árás á einn ráð­herra, heldur á lýð­ræðið sjálft.“

Segir Pétur ásak­an­irnar grafal­var­legar:

„Þetta eru grafal­var­legar og ósannar ásak­anir sem skapa hættu­lega frá­sögn: að frið­söm mót­mæli séu ofbeld­is­full og að gagn­rýnin list jafn­gildi morð­hót­unum. Með því að mála svona mynd er verið að tor­tryggja fólk sem nýtir stjórn­ar­skrár­var­inn rétt sinn til mót­mæla og raun­veru­lega unnið að því að veikja tján­ing­ar­frelsi í land­inu. Það sem var ein­faldur, tákn­rænn gjörn­ingur til að minna á skyldur stjórn­valda sam­kvæmt Gen­far­sátt­mál­anum hefur þannig verið rang­lega flokk­aður sem morð­hótun og ógn við lýð­ræðið sjálft, það er hel­víti gróft og er ég enn að skoða hvaða lag­ara­mmi er til staðar til að verj­ast slíkum ásök­unum.“

Við þessu bætir hann við að félagið Dýrið, sé kom­inn með málið á sitt borð.

„Einnig má bæta því við að félagið Dýrið - sam­tök um réttin til frið­samra mót­mæla sé með málið á sínu borði núna en aug­ljóst sé að vegið er að rétti okkar allra til frið­samra mót­mæla úr mörgum áttum og alls ekki bara í þessu til­tekna máli.“

Að lokum seg­ist Pétur Eggerz vera orð­inn þreyttur á „gas­lýs­ingum“ ráða­manna og segir nú sé kom­inn tími til að standa í hár­inu á „heróðum stór­veldum.“

„Ég er orð­inn mjög þreyttur á því að sjá ráða­menn, þvert yfir póli­tíska rófið, beita gas­lýs­ingu til að skipta okkur upp í fylk­ingar. Við viljum ekki sjá fólk sprengt í tætlur á meðan okkar ráða­menn gera lítið úr alþjóða­lögum og skyldum sínum gagn­vart þeim sem verða fyrir þessu ofbeldi. Núna er tími til að hætta að hlaupa erindi heróðra stór­velda og spyrja sig í stað­inn af hverju fast­eigna­fé­lög og mat­vöru­versl­anir skila met­hagn­aði á meðan almenn­ingur býr við kreppu­á­stand og úrræða­leysi í hús­næðis- og heil­brigð­is­málum. Ef ráð­herrar halda því fram að aðgerð­ar­leysi sé svarið, til að setja ekki sam­starf við erlend ríki í hættu, þá spyr ég: Hverjir hagn­ast í raun á þessu alþjóða­sam­starfi sem murrkar börn niður eins og hakka­vél? Það eru ekki hags­munir almenn­ings, því auð verka­lýðs­ins er verið að ryk­suga upp. Hagurinn skilar sér ekki til fólks­ins hann fer eitt­hvað allt annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti