Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ástþór bóndi: „Eru það ekki bara mannréttindi?“

Á Rauða­sandi eru íbúar ansi hreint kvíðnir vegna sam­göngu­mála í vetur eftir að ferðir mjólk­ur­bíls­ins leggj­ast af

Ástþór bóndi: „Eru það ekki bara mannréttindi?“
Ástþór Skúlason bóndi Segir að bæta þurfi sam­göngur og fjar­skipta­tækni á Rauða­sandi Mynd: Wikipedia/Evgeniy Metyolkin

Á Rauða­sandi eru íbúar ansi hreint kvíðnir vegna sam­göngu­mála í vetur eftir að ferðir mjólk­ur­bíls­ins leggj­ast af.

Segir bóndi á svæð­inu að ef þangað kæmi þriggja fasa raf­magn sem og ljós­leið­ari væri hvergi betra að búa.

Ástþór Skúlason er bóndi á Melanesi og hann segir ferðir mjólk­ur­bíls­ins hafa þýtt það að veg­inum hafi verið haldið opnum:

„Við höfum flotið á því hingað til að það hefur alltaf verið reynt að sækja hingað að minnsta kosti einu sinni í viku mjólk og þá hafa allir reynt að nota þann mokstur ef þeir hafa þurft að fara í búð eða sækja þjón­ustu.“

Kemur fram hjá RÚV að veg­ur­inn um Skers­fjall sé eigi mok­aður með reglu­legu bili á vet­urna; hafa íbúar haft sam­band við sveit­ar­fé­lagið og óskað eftir mokstri þegar þörf hefur verið á.

Ástþór heldur sauðfé, rekur tjald­svæði á Melanesi - en þar er hann fæddur og upp­al­inn.

Rauða­sandur er um það bil 10 kíló­metra löng strand­lengja er ein­kenn­ist af fal­lega lit­uðum rauðum sandi og getur lit­ur­inn verið allt frá því að vera gulur, rauður og allt að því svartur. En þetta fer allt eftir birt­unni. Og sand­ur­inn fær þennan rauða lit lík­leg­ast vegna skelja­brota frá Hörpu­disk­skeljum.

Melanes er einn þriggja bæja á Rauða­sandi sem er í fastri búsetu; nán­ast allir íbúar eru þar fæddir og upp­aldir og hafa hyggju að búa þarna áfram:

„Eru það ekki bara mann­rétt­indi? Ég lít alla­vega svo á að það eigi að vera okkar ákvörðun hvort við búum hér eða ekki“ sagði Ástþór.

Land­leiðin á Rauða­sand er yfir erf­iðan sem og hlykkj­óttan fjall­veg og þar snjóar mikið á vet­urna og öll þjón­usta sveit­ar­fé­lags­ins, til dæmis sorp­hirða, tak­markast eðli­lega af þessum sam­göngum.

Rauða­sandur er að verða afar vin­sæll áfanga­staður ferða­langa; veikir inn­viðir gera hins vegar íbúum afar erfitt fyrir:

„Það er reynt að sækja hingað til okkar á sumrin en um leið og komin er ein­hver snjór eða hálka hérna í dal­inn, þá er ekki sótt,“ segir Ástþór og nefnir einnig að þá geti bændur nán­ast aldrei verið vissir um að kom­ast til Pat­reks­fjarðar að sækja sér nauð­synjar:

„Við gátum fengið mjólk á Lamba­vatni ef í harð­bakk­ann sló en það er ekki hægt lengur. Nú þurfum við að eiga nóg í fryst­inum.“

Ástþór segir tæki­færi þarna um slóðir fyrir ferða­mennsku; en þá verði að efla inn­viði með öfl­ugum hætti og bendir hann á að raf­orku­inn­viðir séu ekki nógu öruggir til að mögu­legt sé að reisa hleðslu­stöðvar fyrir bíla, svo dæmi sé nefnt; þá sé til fólk er hafi áhuga á að búa á Rauða­sandi og vinna fjar­vinnu en fjar­skipta­inn­viðir standa alls ekki undir því:

„Búseta bygg­ist orðið dálítið á þess­ari þjón­ustu, að hafa fjar­skipti, ljós­leið­ara, þriggjafasa raf­magn og nátt­úru­lega sam­göng­urnar. En ef við fáum ein­hverja úrbót á þessum vand­ræðum þá er hvergi ann­ars­staðar betra að vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð