Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þetta er tækifæri Íslands til að velja dýravelferð fram yfir gróða“

Fimm alþjóð­leg félaga­sam­tök, ásamt Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands (DÍS) og Samtökum um dýra­vel­ferð á Íslandi (SDÍ), afhentu 300.000 und­ir­skriftir til Hönnu Katrínar Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra fyrir framan Alþing­is­húsið í dag, þar sem íslensk stjórn­völd eru ein­dregið hvött til að banna blóð­mera­hald.

„Þetta er tækifæri Íslands til að velja dýravelferð fram yfir gróða“
Blóð­mera­haldi mót­mælt Hópurinn sem stóð fyrir gjörn­ingnum Mynd: Lisa Nowinski

Fimm dýra­vernd­un­ar­sam­tök inn­an­lands og erlendis krefj­ast þess að íslensk stjórn­völd end­ur­nýi ekki starfs­leyfi Ísteka til blóð­mera­halds. Samkvæmt sam­tök­unum myndi slík ákvörðun brjóta gegn skuld­bind­ingum Íslands sam­kvæmt EES-samn­ingnum og Evr­óputil­skipun um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni.

Leyfi Ísteka til blóð­töku úr fyl­fullum hryssum rann út í októ­ber, en stjórn­völd þurfa nú að taka ákvörðun um hvort það verði end­ur­nýjað. Af þessu til­efni afhentu dýra­vernd­un­ar­sam­tök Hönnu Katrínu Frið­riks­son, atvinnu­vega­ráð­herra, um 300.000 und­ir­skriftir í dag, þar sem skorað er á stjórn­völd að banna blóð­mera­hald.

Hanna Katrín Frið­riks­sonRáðherra afhentur und­ir­skrift­ar­list­inn

„Þetta er tæki­færi Íslands til að velja dýra­vel­ferð fram yfir gróða,“ segir Sabrina Gurtner, verk­efna­stjóri hjá Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB). „Frá því að við afhjúp­uðum grimmd­ina á bak við blóð­mera­hald hafa hryssur haldið áfram að þjást – hræddar, aðskildar frá folöldum sínum, lok­aðar inni í þröngum básum á meðan að blóði er dælt úr þeim. Það er engin spurn­ing að end­ur­nýjun leyfis Ísteka væri bæði grimm og ómann­úð­leg. Þar að auki væri það brot á Evr­ópu­lögum.“

ESA hefur áður varað Ísland við

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sendi íslenskum stjórn­völdum form­lega aðvörun fyrir rúmum tveimur árum þar sem bent var á að Ísland bryti gegn til­skipun ESB nr. 2010/63/EU um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Ísland hefur við­ur­kennt þessa til­skipun sam­kvæmt EES-samn­ingnum og er því skuld­bundið til að fylgja henni.

Samkvæmt reglu­gerð nr. 460/2017 fellur blóð­taka úr hryssum undir notkun dýra í vís­inda­skyni, sem þýðir að slíkar aðferðir má ekki leyfa ef til eru aðrar leiðir sem ekki fela í sér notkun lif­andi dýra. Slíkar aðferðir séu þegar not­aðar með góðum árangri í löndum eins og Sviss og á Íslandi sjálfu.

„End­ur­nýjun leyf­is­ins stenst ekki lög og væri and­stæð skuld­bind­ingum Íslands sam­kvæmt EES-samn­ingum,“ segir Linda Karen Gunn­ars­dóttir, for­maður Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands (DÍS). „Ísland hefur þegar við­ur­kennt að blóð­mera­hald falli undir vernd til­skip­unar ESB – nýtt leyfi væri því aug­ljós­lega brot á þeirri skuld­bind­ingu.“

Skemmir ímynd Íslands

Samtökin vara einnig við því að áfram­hald­andi blóð­mera­hald geti haft nei­kvæð áhrif á ímynd Íslands á alþjóða­vett­vangi. Þau segja ferða­menn og dýra­vini víða um heim sýna reiði og undrun yfir því að slíkur iðn­aður sé enn leyfður hér á landi.

„Fólk kemur til Íslands til að upp­lifa ósnortna nátt­úru,“ segir Deborah Lewis, her­ferða­stýra hjá Ekō. „En fólki bregður þegar það kemst að því að á bak­við glans­mynd­ina er verið að dæla blóði úr fyl­fullum hryssum í hagn­að­ar­skyni og það er skað­legt fyrir orð­spor lands­ins. Þetta er afger­andi augna­blik fyrir Ísland – stjórn­völd geta ann­að­hvort látið undan iðn­að­inum eða valið sam­kennd og vel­ferð dýra. Við hvetjum ráð­herr­ann í dag til að taka rétta ákvörðun og banna blóð­mera­hald.“

Til að vekja athygli á mál­inu standa dýra­vinir fyrir tákn­rænni aðgerð fyrir framan Alþingi, þar sem sýnt verður hversu mikið blóð er tekið úr hryssum í blóð­mera­hald­inu árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ