Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Fyrsta málverkasýning Mouhamed Lo fer vel af stað

Sækir innblást­urinn til hafsins

Mouhamed Lo
Mouhamed Lo Sjórinn veitir Mouhamed inn­blástur Mynd: Víkingur

Lista­maðurinn Mouhamed Lo er með málverka­sýningu í Iðu Zimsen til 5. nóvember næst­komandi en þar sýnir hann skemmtileg og lifandi málverk, akríl á striga. Sýningin heitir Tveir heimar. Mannlíf settist niður með Mouhamed og ræddi við hann um sýninguna og málara­listina.

Mouhamed Lo

Mouhamed ólst upp í Máritaníu, en settist að á Íslandi fyrir nærri því tveimur áratugum. Í lýsingu á sýningu hans segir að í verkum hans mætist tveir heimar í drauma­kenndum veruleika á tvívíðum fleti. Viðfangs­efni Mouhamed er órætt en sjá má fugla, auk fleiri dýra, manna eða verum á mörkum andaheims og hins efnislega. Í lýsingunni segir einnig að verkin einkennist af tilrauna­starfsemi og leikgleði.

Um er að ræða fyrstu málverka­sýningu Mouhamed en hann hóf að mála árið 2021. „Ég er búinn að selja sex málverk úr sýningunni,“ segir Mouhamed með bros á vör í samtali við Mannlíf þar sem blaða­maður situr með lista­manninum umkringdur bókum og málverkum á Iðu Zimsen með kaffi­ilminn í vitunum. Lo segist sækja innblástur að miklu leyti í náttúruna í verkum sínum. „Eins og hér,“ segir hann og bendir á málverk sem sýnir rauðhærða konu en verkið er í uppáhaldi hjá honum. „Þessi hugmynd kom til mín þegar ég var við sjóinn á Seltjarnarnesi þar sem ég bý. Fólk glímir oft við vandamál, er stressað og á erfitt, er einmanna eða hvað eina og það horfir til hafsins og líður betur. Það var það sem kom í huga mér þegar ég málaði þetta verk.“

Og það er fleira í nátt­úrunni sem veitir Mouhamed innblástur en oftar en ekki fær hann hugmyndir þegar hann er í göngutúrum og sér til dæmis klett sem kemur upp úr sjónum eða í raun hvað sem er sem hann sér í nátt­úrunni og vekur athygli hans. „Þá skissa ég upp mynd og fer síðan heim og reyni að gera málverk eftir skissunni,“ segir lista­maðurinn brosandi.

En hvernig hafa viðtökurnar verið við fyrstu sýningu hans?

„Fólk hefur verið að segja að þetta séu góðar myndir hjá mér en ég veit ekkert hvort þetta sé gott eða slæmt, ég geri bara mitt besta.“

Sýningin er eins og áður segir í Iða Zimsen og er til 5. nóvember, aðgangur er ókeypis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Menning

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt