Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

„Ég vil bara skapa, þó að líkaminn fylgi ekki“

Lamaður íslenskur munn­málari kynnir nýtt verkefni

Brassi
Brassi Brassi að störfum Mynd: Aðsend

Nýtt verkefni lista­mannsins Brands Bryndísar­sonar Karls­sonar, betur þekktur sem Brassi, hefur vakið mikla athygli síðustu daga. Á Karolina Fund eru nú seldir sérhönnaðir bollar sem prýddir eru málverkum hans, sem hann málar með munninum. Markmið verk­efnisins er einfalt en áhrifa­ríkt: að gera list Brassa aðgengilegri almenningi og skapa honum tækifæri til að halda áfram sem lista­maður.

BrassiBrassi er með ein­dæmum lífs­glaður lista­maður

Margir kannast við Brand eftir að umfjöllun um hann birtist fyrir nokkrum árum, þar sem fjallað var um ferðalag hans í svifvæng í sérsmíðuðum flugstól með vini hans, Gísla Steinari Jóhannessyni. Þrátt fyrir að vera lamaður fyrir neðan háls hefur Brandur sýnt óvenju­legan þrekvilja og lífsgleði sem hefur haft djúp áhrif á þá sem kynnast honum.

„Ég vil bara skapa, þó að líkaminn fylgi ekki. Listin er það sem gefur mér sjálf­stæði, hún er vinnan mín og leiðin mín til að vera hluti af samfélaginu,“ segir Brandur. Hann segir að verkefnið á Karolina Fund sé sprottið af löngun til að geta haldið áfram að mála, skapa og þróa eigið frumkvöðla­starf. „Fólk sér oft fötlunina fyrst, en ég vil að fólk sjái listina líka. Bollarnir eru leið til að koma henni til fleiri og byggja upp starf þar sem ég get skapað áfram.“

Brassi málarBrassi málar með munn­inum

Gísli Steinar, vinur Brandurs og fylgis­maður í ýmsum ævintýrum hans, segir að list­sköpun Brassa sé bæði áhrifa­mikil og hvetjandi. „Það er eitthvað við það að sjá mann sem mætir svona áskorunum og ákveður samt að skapa fegurð á hverjum einasta degi. Þetta verkefni á skilið athygli og aðstoð,“ segir hann.

Bollarnir eru prýddir myndefni úr málverkum Brassa og flytja þannig list hans beint inn í daglegt líf notenda. Sölu­tekjur þeirra styrkja áfram list­sköpun og frumkvöðla­starf hans.

Nánari upplýsingar um verkefnið og Brand má sjá hér: Karolina Fund – Brandur Bryndísarson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Menning

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt