Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragga nagli segir unga drengi í „stórhættu“

„Hömrum á þeim að sjálfs­myndin bygg­ist ekki á hvernig þeir líta út heldur á inn­vols­inu þeirra“

Ragga nagli segir unga drengi í „stórhættu“
Ragga nagli Ragga hittir oft naglann á höf­uðið Mynd: Aðsend

Sál­fræð­ing­ur­inn Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, hvetur í nýrri og ítar­legri Facebook-færslu for­eldra og sam­fé­lagið allt til að bregð­ast við hættu­legu og ört vax­andi fyr­ir­bæri sem hún segir ógna heilsu og lífs­gæðum ungra drengja. Hún varar við því að „Útlits­há­mörkun er ekki bara húmor­ískur hégómi hjá ungum mönnum. Þetta nýja trend á sam­fé­lags­miðlum er stór­kost­leg heilsu­fars­leg ógn við unga drengi og menn.“

Ragga vísar þar til banda­rísks áhrifa­valds, Braden Peters, sem póstar efni undir not­enda­nafn­inu Clavicular á TikTok, Instagram og streym­isveit­unni Kick. „Skilaboð kauða snú­ast aðal­lega um hið nýja fyr­ir­bæri ‚útlits­há­mörkun‘ (Lookmaxxing) sem á rætur sínar að rekja til net­sam­fé­lags ungra manna og drengja,“ skrifar hún og segir það snú­ast um „Hvernig þú getur betrumbætt útlit og skrokk með allskyns aðferðum.“

Hún bendir á að annar áhrifa­valdur, Jason Latham, sé með „einn milj­arð af áhorfi á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann ráð­leggur drengjum hvernig þeir geta minnkað nefið, hvað er að gera þá ljót­ari, hvernig þeir ondúlera hárið betur og selur auð­vitað sitt eigið hár­sprey og rakar inn seðlum.“

Frá saklausri snyrtingu yfir í stórhættulegar aðferðir

Ragga segir að sak­laus­ari útgáfa útlits­há­mörk­unar snú­ist um snyrti­vörur, hár­krem, Omega-3 og lík­ams­rækt, en að harð­ari útgáfan sé stór­vara­söm. Þar séu drengir hvattir til að „taka stera og peptíð, sjúga kreatín í gegnum nefið, fara í lýta­að­gerð, berja á sér kjálk­ana með hamri, stinga nálum í svæðið kringum augun, og eyða mörgum klukku­tímum í rækt­inni.“

Ungum drengjum sé gefin ein­kunn á „útlits­ska­l­anum“ og síðan seldar lausnir við meintum galla þeirra. „Kap­ít­al­ismi í sinni allra ljót­ustu mynd sem herjar á óharðn­aða áhrifagjarna óör­ugga æsk­una sem þráir ekk­ert heitar en sam­þykki, við­ur­kenn­ingu og að til­heyra.“

„Aðallega að hámarka snemmbúinn dauðdaga“

Ragga lýsir Clavicular sem alvar­legu dæmi um hættu­leg skila­boð. Hann hafi sjálfur byrjað stera­notkun 14 ára og sjái nú fram á útlima­leng­ingu vegna þess að hann sé „ósáttur við að vera aðeins 1.85 m á hæð.“ Hún segir: „Svo allir fylgj­endur hans sem eru undir því hæð­ar­við­miði upp­lifa von­leysi.“

Hún bendir á að hann hafi einnig sprautað „17 ára kær­ustu sína með pept­íðum sem eiga að strekkja á húð­inni. Ekki ein­asta er þetta stór­hættu­legt, en húðin á 17 ára barni er eins og rass á unga­barni.“

Í færsl­unni telur Ragga upp lyfja­lista sem áhrifa­vald­ur­inn seg­ist nota: „Töflur til að verða brúnn, eit­ur­lyf sem líkja eftir áhrifum áfengis til að spara hita­ein­ingar, Anavar sterar, testó­sterón­upp­bót, ADHD lyf til að vinna í tölv­unni, pept­íð­lausn úr svína­heila sem er notað fyrir eldra fólk með Alzheimer, ketamín og vaxt­ar­hormón.“ Hún bætir við: „Nota bene.... hann er tví­tugur að aldri.“

Um hvort hann gæti þá verið í tengslum við und­ir­heima­lyfja­sölu spyr Ragga kald­hæðn­is­lega: „Hvar hann nálg­ast öll þessi lyf fær mið­aldra konu í Kaup­manna­höfn til að klóra sér í skall­anum.“ Bætir hún svo við: „En miðað við þessa upp­taln­ingu er hann aðal­lega að hámarka snemm­bú­inn dauð­daga.“

Ungir drengir greiða með heilsu sinni

Clavicular selur einnig áskrift­ar­prógrömm fyrir 50 doll­ara á mán­uði. Ragga segir hann lofa að „horaðir lúðar sem engin kona lítur við umbreyt­ast í helmassa­kött­aða menn sem úsa sjálfs­trausti.“ Fylgj­enda­hóp­ur­inn sé einkum ungir drengir: „Stærsti fylgj­enda­hóp­ur­inn hans eru 14–20 ára drengir, og 46% af þessum áskrif­endum að þessu prógrammi eru 14–17 ára.“

Hún segir þetta skapa stór­kost­lega hættu á skaða: „Semsagt áhrifagjarnir, óör­uggir drengir heila­þvegnir um að vera ekki nógu fal­legir, ekki nógu hávaxnir, ekki nógu mass­aðir, því þeir skora ekki nógu hátt á ‚útlits­ska­l­anum‘ en örvænt eigi... við höfum lausn­ina.“

Afleið­ing­arnar geti verið alvar­legar. „Þeir eiga á hættu að þróa með sér lík­ams­skynj­un­ar­röskun (body dysmorphia)… óheil­brigt og öfga­kennt sam­band við speg­il­mynd­ina, mat og æfingar, ofnotkun á bæti­efnum og jafn­vel ólög­legum efnum í sprautu­formi.“ Sálrænar afleið­ingar séu meðal ann­ars „félags­leg ein­angrun, þung­lyndi, kvíði, æfinga­þrá­hyggja.“

Foreldrar þurfa að vakna

Ragga segir að sam­fé­lagið verði að horfast í augu við að drengir séu nú í svip­aðri hættu og ungar stúlkur fyrir óraun­hæfum útlitsvið­miðum. „Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlk­urnar okkar fyrir óraun­hæfum við­miðum um útlit. Drengirnir okkar eru líka í hættu. STÓRHÆTTU!!“

Hún hvetur for­eldra til að fylgj­ast náið með hvað börnin þeirra horfi á: „Clavicular er bara einn af fjöl­mörgum með slík lífs­hættu­leg skila­boð. Það er ærin ástæða fyrir for­eldra að fylgj­ast með hverjum ungir drengir eru að fylgja og hvaða skila­boð þeir eru að hlusta á.“

Að lokum leggur Ragga áherslu á að styrkja sjálfs­mynd drengja með öðrum hætti en í gegnum útlit: „Hömrum á þeim að sjálfs­myndin bygg­ist ekki á hvernig þeir líta út heldur á inn­vols­inu þeirra hvernig þeir koma fram við aðra, sýna sam­kennd, kímni­gáfu og eru til staðar fyrir vini sína.“

Hún hvetur for­eldra til að kenna drengjum að „útvista ekki sam­þykk­inu útá­við til ann­arra, heldur hvetjum þá til að hrósa sjálfum sér og vera stoltir af afrekum sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð