Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Gleðileg fjöldajólamorð ... og farsælt komandi sprengjuár!“

Kristinn Hrafns­son gagn­rýnir „frið­ar­gjafir“ Banda­ríkj­anna og segir alþjóða­kerfið hrunið

„Gleðileg fjöldajólamorð ... og farsælt komandi sprengjuár!“
Donald Trump Kristinn Hrafns­son segir Trump vera heið­ar­legan keis­ara Mynd: Shutterstock

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, gagn­rýnir harð­lega sprengju­árásir Banda­ríkja­stjórnar í nýrri Facebook-færslu sem hann birtir undir yfir­skrift­inni „Gleðileg fjölda­jóla­morð ...“ Þar líkir hann boð­skap stjórn­valda í Washington við áróður keis­ara­veldis Rómar og segir að lof­orð um frið séu í raun hulin aðgerðum sem valdi blóðsút­hell­ingum og óstöð­ug­leika.

Kristinn setur sögu­lega hlið­stæðu við Neró keis­ara og mynt­slátt hans: „Klinkið var í lófum þegn­ana á degi hverjum og á aurana pressuð sú ímynd sem keis­ar­inn vildi halda að fjöld­anum. Neró nýtti sér þetta óspart með áletr­unum um frið, mildi, harm­óníu - pax, clementia, concorida.“ Hann bendir á að valda­tími Nerós hafi í raun ein­kennst af „póli­tískum aftökum, óstöð­ug­leika, fjár­mála­óreiðu og ófriði“ þrátt fyrir ímynd­ina á mynt­unum.

Í færsl­unni líkir hann svo frið­ar­boð­skap jóla frá Trump-stjórn­inni við loft­árásir í Nígeríu. Hann skrifar að Banda­ríkin hafi „sent sprengjur djúpt inn í Afr­íku­ríkið til að drepa þar öfga­hópa undir íslömskum fána til að hefna drápa á þeim sem fylktu sér undir kross Krists.“ Þessi „jóla­dráp“ hafi farið fram þrátt fyrir að yfir­völd í Nígeríu hafi reynt að aftra erlendum hern­að­ar­að­gerðum.

Kristinn hafnar hug­mynd­inni um að Donald Trump hafi fundið upp hern­að­ar­lega „gjaf­mildi“ Banda­ríkj­anna og segir þetta vera „gam­all siður sem þró­að­ist sam­hliða útbreiðslu jóla­sveins­ins og Coca Cola.“ Hann reifar að frá árinu 2001 hafi Banda­ríkin aukið umfang hern­að­ar­í­hlut­ana veru­lega, óháð því hvaða flokkur sé við völd, og að stefna rík­is­ins sé óbreytt „að grunni til“.

„Í ein­feldni og fávisku reyna margir að saka Trump um að hafa fundið upp banda­rísku gjaf­mild­ina að sprengja inn frið­inn hér og hvar í heim­inum. Það er af og frá, enda gam­all siður sem þró­að­ist sam­hliða útbreiðslu jóla­sveins­ins og Coca Cola.

Frá 11. sept­em­ber 2001 hefur frið­ar­gjaf­mildin þó auk­ist til muna en á þessum 24 árum hafa amer­ísku flokk­arnir skipt valda­tím­anum á milli sín til helm­inga, Demókratar stýrt í 12 ár (Obama og Biden) og Repúblík­anar í 12 ár (Bush og Trump).“

Hann gagn­rýnir einnig hnignun alþjóð­legs rétt­ar­kerfis og fjallar um Nóbels­verð­launin í sam­hengi við störf suður-amer­íska stjórn­mála­manns­ins María Corinu Machado, sem hann segir hafa hvatt til hern­aðar gegn heima­landi sínu: „Svo ískrandi tónar hafa ekki heyrst úr frið­ar­fiðl­unni síðan Neró mis­þyrmdi strengj­unum fyrir par-árþús­undum.“

Kristinn segir Trump vera „heið­ar­legan keis­ara“ og vísar til þess að for­set­inn líti ekki á það sem vanda­mál að fylgja hug­sjón­inni að „stríð er friður“. Hann gagn­rýnir einnig yfir­lýs­ingar og afstöðu JD Vance vara­for­seta, meðal ann­ars þegar hann hafn­aði alþjóða­lögum með orð­unum: „Ég gef skít í hvað þú kallar það“ („I don't give a shit what you call it“).

Íslensk stjórn­völd eru einnig gagn­rýnd í færsl­unni. Kristinn skrifar að rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur hafi sýnt svipuð við­brögð og sagan kennir um eldri konu í Þing­eyj­ar­sýslu sem „mynd­i þetta enda með því að þeir meiddu hver annan“, þegar fyrri heim­styrj­öldin hófst og að íslensk stjórn­völd haldi sig við „inn­an­tóma mön­tru um virð­ingu fyrir „vest­rænum gildum“ eða „horn­steinum“ íslenskrar utan­rík­is­stefnu“ þrátt fyrir að þessi gildi séu ekki lengur virt á alþjóða­vett­vangi.

Þá full­yrðir hann að Evrópa standi ráða­laus and­spænis breyttum veru­leika og að Trump-stjórnin „blæs þarmagusti á alla gagn­rýni á stríðs­glæpi og þjóð­ar­morð“, með kald­hæðnu lat­nesku setn­ing­unni: „In pacem pedere - ég prumpa á frið­inn.“

Í lokin hvetur Kristinn til þess að smá­ríki eins og Ísland sætti sig ekki við hlut­verk þög­uls áhorf­anda: „Það er þó lág­mark að sitja ekki eins og klessa, annað hvort stein­þegj­andi eða hjalandi ein­hverja inn­an­tóma vit­leysu á meðan fnyk­ur­inn fyllir her­bergið.“ Færslan endar á kald­hæð­inni jóla- og nýárs­kveðju: „... og far­sælt kom­andi sprengjuár!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ