Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hjálmtýr hjólar í Stefán Einar

„Allt fólk með óbrenglaða rétt­læt­is­kennd for­dæmir kúg­un­ina í Íran - en gleymir ekki kúg­un­inni í Ísrael - sem SES styður.“

Hjálmtýr hjólar í Stefán Einar
Hjálmtýr Heiðdal Hjálmtýr lætur Stefán Einar heyra það

Hjálmtýr Heiðdal, for­maður félags­ins Ísland–Palest­ína, hefur svarað opin­ber­lega Facebook-færslu Stefáns Einars Stef­áns­sonar fjöl­miðla­manns, þar sem sá síð­ar­nefndi spurði hvar nokkrir nafn­greindir aðgerða­sinnar væru staddir og af hverju ekk­ert heyr­ist í þeim varð­andi mót­mælin í Íran sem nú standa yfir en meira en 200 mót­mæl­endur hafa verið drepnir und­an­farna daga. Hjálmtýr segir færsl­una bera vott um til­raun til að grafa undan stuðn­ingi við Palest­ínu með ásök­unum um þögn gagn­vart kúgun í Íran og hafnar jafn­framt full­yrð­ingum um gyð­inga­hatur.

Stefán Einar spurði á Facebook-síðu sinni: „Og hvar er Magga Stína? Hjálmtýr Heiðdal? Illugi Jök­uls­son? Sveinn Rúnar Hauksson?“ Í svari Hjálmtýs, sem hann birti einnig á eigin síðu, segir hann spurn­ing­una byggða á þeirri hug­mynd að stuðn­ings­fólk Palest­ínu hafi ekki for­dæmt klerka­stjórn­ina í Íran.

„Ég get upp­lýst hann um að ég er heima hjá mér og skrifa þessi orð,“ skrifar Hjálmtýr og bætir við að „sökn­uður“ Stefáns Einars teng­ist því að hann vilji að nefndir ein­stak­lingar for­dæmi stjórn­völd í Íran opin­ber­lega. Hjálmtýr segir hins vegar að það sem sam­eini fólkið sem Stefán Einar nefnir sé and­staða gegn allri kúgun, óháð landi eða stjórn­ar­fari.

„Þessir ein­stak­lingar sem SES nefnir eiga það sam­eig­in­legt að vera and­stæð­ingar allrar kúg­unar – í Íran, í Rúss­landi, í Banda­ríkj­unum, í Venes­ú­ela og í Palest­ínu,“ skrifar Hjálmtýr.

Í færslu sinni gagn­rýnir Hjálmtýr einnig harð­lega þá orð­ræðu sem hann segir Stefán Einar við­hafa í garð stuðn­ings­fólks Palest­ínu og hafnar því að and­staða við Ísrael jafn­gildi gyð­inga­hatri.

„Hann segir okkur vera gyð­inga­hat­ara og drýgir þar með þann glæp að segja að gyð­ingar stundi þjóð­ar­morð,“ skrifar Hjálmtýr og leggur áherslu á að aðgreina þurfi trú og stjórn­mála­stefnu. „Gyð­ing­dómur og síon­ismi eiga ekk­ert sam­eig­in­legt. Síon­ism­inn er stjórn­mála­stefna byggð á kyn­þátta­hyggju og nýlendu­stefnu en gyð­ing­dómur er trú eins og kristni og Islam.“

Hjálmtýr bendir jafn­framt á að meðal gyð­inga séu bæði stuðn­ings­menn og and­stæð­ingar síon­isma og að öfl­ug­ustu gagn­rýnendur stefnu Ísraels séu einmitt gyð­ingar og fólk af gyð­inga­ættum.

Varðandi þá spurn­ingu hvers vegna mót­mæli gegn Íran sjá­ist síður á götum Íslands en mót­mæli gegn Ísrael, segir Hjálmtýr að þar skipti máli tengsl Íslands við ríkin tvö. Hann segir íslensk stjórn­völd hafa skuld­bundið sig með alþjóða­samn­ingum til að bregð­ast við þjóð­ar­morði og að Ísland hafi beinar póli­tískar og diplómat­ískar teng­ingar við Ísrael.

„And­staðan gegn Ísrael og síon­ism­anum birt­ist hér á götum og torgum vegna þess að Ísland teng­ist Ísrael á margan hátt og að íslensk stjórn­völd hafa und­ir­ritað sátt­mála og samn­inga sem skuld­binda þau til að bregð­ast við þjóð­ar­morði með alvöru aðgerðum,“ skrifar hann.

Hann bendir jafn­framt á að íslensk stjórn­völd hafi þegar for­dæmt stjórn­völd í Íran, meðal ann­ars í gegnum mál­flutn­ing Íslands á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, og að staðan gagn­vart Íran sé því önnur.

„Allt fólk með óbrenglaða rétt­læt­is­kennd for­dæmir kúg­un­ina í Íran – en gleymir ekki kúg­un­inni í Ísrael – sem SES styður,“ skrifar Hjálmtýr að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ