Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Segir Miðflokkinn geta boðið bandaríska sendiherranum á þorrablót

„Þar sem hann getur reytt af sér brand­ara um skræl­ingja á Græn­landi og á Gaza og hversu vel ungir Mið­flokks­menn myndu smellpassa í brún­stakka ICE þegar Ísland er orðið 52. ríkið.“

Segir Miðflokkinn geta boðið bandaríska sendiherranum á þorrablót
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Kristinn skýtur föstum skotum á Mið­flokk­inn Mynd: Víkingur

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, gagn­rýnir harð­lega Nóbels­verð­launin og banda­ríska utan­rík­is­stefnu í Facebook-færslu á dög­unum, sem hann skrif­aði í kjöl­far heim­sóknar Maria Corina Machado til Donald Trump í Hvíta hús­inu. Í leið­inni skýtur hann föstum skotum á Mið­flokk­inn.

Machado, sem nýverið hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels, færði Trump sjálfan Nóbels­gull­pen­ing­inn að gjöf eins og frægt er orðið. Kristinn túlkar gjörn­ing­inn sem þakk­læt­is­vott fyrir hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna gegn Venes­ú­ela og segir:

„Vænt­an­lega í þakk­læt­is­skyni fyrir að hafa drepið 200 manns í árásum á ætt­jörð hennar og haf­svæðið í grennd, rænt for­seta lands­ins og olíu­auð­lind­unum í leið­inni.“

Kristinn heldur áfram og segir að þetta hafi ekki átt að koma á óvart þar sem Machado hafi sjálf hvatt Trump til þess­ara aðgerða áður en hún var sæmd verð­laun­unum:

„Þetta á ekki að koma á óvart enda hvatti Machado Trump til þess­ara verka áður en hún var sæmd verð­laun­unum í Osló og með vel­gjörð­ar­merki Nóbels sín megin, varð létt­ara fyrir Banda­ríkja­for­seta að láta til skarar skríða.“

Í færsl­unni bendir Kristinn jafn­framt á það sem hann kallar „magn­aða nið­ur­læg­ingu“ Machado, þar sem Trump hafi sama dag gert lítið úr póli­tísku vægi hennar:

„Það er svo mögnuð nið­ur­læg­ing fólgin í því að Trump, sama dag og hann tekur á móti gjöf­inni, ítrekar hann að Machado sé ekki þess verð að leiða lands­menn sína og njóti ekki til þess trausts. Trump vill miklu heldur gera díla við Delcy Rodriguez, eft­ir­mann Maduros.“

Kristinn segir að með þessu hafi einnig verið vegið að sjálfri Nóbelsaka­dem­í­unni og trú­verð­ug­leika frið­ar­verð­laun­anna:

„Nið­ur­læg­ing Nóbelsaka­dem­í­unnar er líka alger og vand­séð að frið­ar­verð­launin nái nokkru sinni til baka ein­hverri virð­ingu. Norska pressan er hins vegar upp­full af vand­læt­ing­ar­röddum um þetta fram­sal gull­pen­ings­ins til Trumps. Fáir lýsa yfir vand­læt­ingu yfir þeirri stjörnu­gölnu ákvörðun að veita Machado verð­launin í upp­hafi.“

Í færsl­unni tengir Kristinn jafn­framt þróun mála í Venes­ú­ela við umræðu um Grænland og segir frið­ar­verð­launin hafa orðið hvati að frek­ari hern­að­ar­hyggju:

„Nóbels­verð­launin urðu hvati til þess að Trump gaf grænt ljós á árás­irnar á Venes­ú­ela og var varla búinn með verkið þegar það græna ljós futt­ist yfir á Grænland, enda kóng­ur­inn í Hvíta hús­inu kom­inn í ham. Norska nóbels­nefndin á því hlut­deild í því að Græn­lend­ingar eru flemtri slegnir að búa sig undir inn­rás banda­ríkja­hers.“

Í lok færslu sinnar beinir Kristinn Hrafns­son einnig spjótum sínum að íslenskum stjórn­málum og nefnir þar sér­stak­lega Mið­flokk­inn í sam­hengi við vænt­an­legan sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi.

Kristinn bætir því við að ummæli Long um að Ísland gæti orðið 52. ríki Banda­ríkj­anna hafi verið dregin til baka af meiri póli­tískri skyn­semi en sjá­ist stundum hér á landi:

„Á sama tíma virð­ist verð­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi hafa áttað sig á því að það sé ekki póli­tískt taktíst að gant­ast með að Ísland verði 52. ríki Banda­ríkj­anna (Grænland vænt­an­lega 51.) nema Billy hafi meiri snert af sóma­til­finn­ingu en sumir íslenskir stjórn­mála­menn sem greind­ar­keppa við þurrk­aða þorsk­hausa og hafa sjaldn­ast betur.“

Hann segir að stuðn­ings­menn Billy Long innan flokks­ins geti tekið vel á móti honum í óform­legum félag­s­kap:

„Áðdá­endur Billy boy í Mið­flokknum geta samt sem áður boðið honum á þorra­blót þar sem hann getur reytt af sér brand­ara um skræl­ingja á Græn­landi og á Gaza og hversu vel ungir Mið­flokks­menn myndu smellpassa í brún­stakka ICE þegar Ísland er orðið 52. ríkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum