Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þingmaður segir Epstein hafa notað afmæli sín til að misnota stúlkur

Segir að kom­inn sé tími til að nefna nöfn úr Epstein-skjöl­unum

Þingmaður segir Epstein hafa notað afmæli sín til að misnota stúlkur
Suhas Subramanyam Þing­mað­ur­inn heldur áfram að minna á Epstein-skjölin Mynd: KAYLA BARTKOWSKI / GETTY IMAGES VIA AFP

Samkvæmt einum þeirra þing­manna sem þrýsta á um birt­ingu mynda og skjala úr Epstein-mál­unum var afmæl­is­dagur hans lítið annað en enn eitt til­efni til að mis­nota ungar konur.

Hinn látni barn­a­níð­ingur hefði orðið 73 ára í gær, og segir banda­ríski þing­mað­ur­inn Suhas Subramanyam, demókrati frá Virginíu og nefnd­ar­maður í eft­ir­lits­nefnd full­trúa­deild­ar­innar, í sam­tali við TMZ að afmæl­is­dagur Epstein sé „lík­lega mjög erf­iður dagur fyrir margar konur“.

Afmæli Epstein hafa verið í brennid­epli í svoköll­uðum Epstein-skjölum. Þar kemur meðal ann­ars fram að Ghislaine Maxwell hafi sett saman bók í til­efni af 50 ára afmæli hans, með bréfum frá frægum vinum hans, þar á meðal klám­fengið bréf sem á að hafa komið frá Donald Trump, sem hefur neitað því að hafa skrifað það.

Subramanyam hefur áður sagt að tími sé kom­inn til að „nefna nöfn“ í skjöl­unum, en hingað til hefur birt­ing gagna verið afar hæg, þrátt fyrir að lög­bund­inn skila­frestur hafi runnið út fyrir meira en mán­uði síðan.

Þing­mað­ur­inn segir skýra ástæðu fyrir áhersl­unni á afmæli Epstein og bætir við:

„Það er ljóst af sönn­un­ar­gögnum að Epstein not­aði afmæl­is­dag­inn sinn sem afsökun til að fremja man­sal og mis­nota stúlkur.“

Í þeim hluta Epstein-skjala sem þegar hefur verið birtur eru meðal ann­ars myndir af Epstein ásamt þremur ungum konum þar sem þau fagna 54 ára afmæli hans. Konurnar klæð­ast allar kjólum með töl­unni 54 prent­aðri á bakið.

Einnig hafa komið fram myndir af Epstein þar sem hann situr við borð með tveimur öðrum ein­stak­lingum og afmælistertu. Hann er í sömu peysu og á mynd­unum með kon­unum, en óljóst er hverjir sitja með honum þar sem and­lit þeirra hafa verið afmáð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife