Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

DJ Fat Tony segir frá því sem raunverulega gerðist í Beckham-brúðkaupinu

„Ég var þarna, og þetta gerðist. Hann segir satt.“

DJ Fat Tony
DJ Fat Tony Hinn granni plötu­snúður styður Brooklyn Mynd: Instagram

Plötu­snúðurinn DJ Fat Tony hefur greint frá því sem raun­verulega átti sér stað í brúðkaupi Brooklyn Beckham og Nicola Peltz, eftir að Brooklyn birti ítarlega yfir­lýsingu um deilur sínar við foreldra sína, Victoria Beckham og David Beckham.

Brooklyn, sem er 26 ára, vakti mikla athygli fyrr í vikunni þegar hann birti sex blaðsíðna yfir­lýsingu þar sem hann sagðist ekki hafa áhuga á að sættast við foreldra sína. Þar hélt hann því fram að móðir hans hefði „hertekið“ fyrsta dans hans og eiginkonu sinnar í brúðkaupinu.

„Marc Anthony kallaði mig upp á svið, þar sem samkvæmt dagskrá átti að vera rómantíski fyrsti dansinn minn með eiginkonu minni, en í staðinn beið móðir mín þar eftir að dansa við mig,“ skrifaði Brooklyn.

„Hún dansaði mjög óviðeigandi upp við mig fyrir framan alla. Ég hef aldrei á ævinni liðið jafn óþægilega eða niður­lægður.“

Brooklyn sagði að þau Nicola hefðu jafnvel viljað endurnýja hjúskapar­heit sín til að skapa nýjar og jákvæðari minningar:

„Við vildum búa til minningar sem færu okkur gleði og hamingju, ekki kvíða og skömm.“

Nú hefur DJ Fat Tony varpað nánara ljósi á atburðina. Hann kom fram í morgun­þættinum This Morning og sagði að hann hefði séð um tónlistina í brúðkaupsbrönsinum daginn eftir athöfnina.

„Ég DJ-aði í brönsinu, sem var eiginlega vandræðalegasti hlutinn, því þá var allt kvöldið áður rætt,“ sagði hann.

Um dans Viktoríu sagði hann:

„Það var enginn „slut dropping“, enginn PVC-katta­búningur og engar Spice Girls-hreyfingar. Orðið óviðeigandi snýst um tíma­setninguna.“

Hann sagði að Marc Anthony hefði kallað Brooklyn á sviðið og beðið „fallegustu konuna í salnum“ að koma með sér, áður en hann nefndi Viktoríu.

„Á því augna­bliki er Brooklyn miður sín því hann hélt að hann ætti að dansa fyrsta dansinn með eiginkonu sinni. Nicola fer hágrátandi út. Marc segir svo: „Settu hendurnar á mjaðmir móður þinnar!“ Þetta var latínu­dans og öll staðan var óþægileg fyrir alla í salnum.“

DJ Fat Tony hafði áður gert grín að málinu á samfélags­miðlum með því að deila mynd­skeiði þar sem leikkonan Lucy Punch dansar vandræða­lega í sjónvarps­þættinum Motherland, og skrifaði:

„Raun­verulegt myndband, ég var þarna!“

Maki hans, Stavros Agapiou, staðfesti einnig frásögn Brooklyn í færslu sem síðar var eytt: „Ég var þarna, og þetta gerðist. Hann segir satt.“ Hann bætti síðar við: „Vel gert hjá honum að tala loksins.“

Í kjölfarið var greint frá því að Victoria og David Beckham hefðu hætt að fylgja DJ Fat Tony á Instagram, þrátt fyrir áralanga vináttu. Tony hafði meðal annars verið plötu­snúður í 21 árs afmæli Brooklyn og hélt tónlistar­viðburð í beinni á Instagram fyrir Viktoríu í Covid-lokuninni árið 2020.

Í gær sást Brooklyn opinber­lega með Nicolu í fyrsta sinn síðan yfir­lýsingin var birt. Parið gekk brosandi með hund sinn á ströndinni í Malibu í Kaliforníu. Heimildar­maður sagði við The Mirror:

„Hann myndi gera þetta allt aftur hiklaust, en nú vill hann bara lifa lífi sínu með konunni sem hann elskar.“

Hér fyrir neðan má sjá mynd­bandið sem Fat Tony birti í gríni á Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku