Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nágrannerjur: Ásakanir fljúga yfir Grensásveg

Saka hvor annan um lygar, áreitni og rasíska fram­komu

Nágrannerjur: Ásakanir fljúga yfir Grensásveg
Bílum lagt við mat­vöru­versl­un­ina Ásakanir fljúga á víxl milli eig­anda fyr­ir­tækj­anna Mynd: Facebook

Ágrein­ingur hefur blossað upp milli eig­enda Istanbul Market og BK kjúklingur, sem eru stað­sett sitt­hvoru megin við Grens­ás­veg. Eigandi Istanbul Market, Yusuf Koca, sakar nýjan eig­anda BK kjúklings um að leggja ítrekað bif­reiðum sínum í bíla­stæði fyrir framan versl­un­ina, þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir um að hætta því.

Í Facebook-færslu Istanbul Market segir að tveir bílar sem hafi staðið fyrir framan versl­un­ina til­heyri eig­anda BK kjúklings. Þar segir meðal ann­ars:

„Þrátt fyrir vin­sam­legar beiðnir hefur nýi eig­and­inn neitað að fjar­lægja öku­tækin úr bíla­stæðum sem eru ætluð okkur. Því miður höfum við því ekki annan kost en að ráð­ast í lög­fræði­legar aðgerðir til að láta fjar­lægja bíl­ana og krefj­ast við­eig­andi bóta.“

Í færsl­unni segir einnig að öku­tækjum sé „vís­vit­andi lagt hér dag­lega“ og við­skipta­vinir séu hvattir til að nota bíla­stæði aftan við bygg­ing­una á meðan málið standi yfir.

Eigandi BK kjúklings hafnar ásökunum

Annar eig­andi BK kjúklings, Dara Ako Ali hafnar ásök­unum alfarið. Í svari til Mannlífs, sem er hér þýtt úr ensku, segir hann:

„Þetta er alls ekki rétt sem hann er að segja, þið getið spurt alla nágrann­ana. Hann er í átökum við alla sem hann kemst í kynni við. Hann heldur að hann einn megi leggja fyrir framan Istanbul Market, eins og það til­heyri honum.“

Hann segir jafn­framt að um sé að ræða almenn­ings­bíla­stæði og að Reykja­vík­ur­borg hafi verið upp­lýst um málið:

„Við höfum verið í sam­skiptum við Reykja­vík­ur­borg og honum er ekki heim­ilt að setja lím­miða eða segja að þetta sé ein­göngu fyrir Istanbul Market. Þetta eru almenn­ings­bíla­stæði og hver sem er má leggja þar, hvernig sem er og eins lengi og hann vill.“

Ali segir jafn­framt að starfs­fólk og tengdir aðilar Istanbul Market leggi fjölda bíla fyrir framan veit­inga­stað hans:

„Hann er með fimm bíla, starfs­menn og vini, sem leggja öllum bíl­unum fyrir framan BK kjúkling eða hinum megin á Grens­ás­vegi. Þess vegna er ekk­ert pláss fyrir okkar við­skipta­vini, okkar bíla eða starfs­fólk.“

Þá segir hann að sam­skiptin hafi farið í óæski­legan far­veg:

„Ég á ekk­ert per­sónu­legt vanda­mál við hann, en hegðun hans er orðin mjög öfga­full og hann er orð­inn rasískur í fram­komu. Þetta snýst ekki bara um mig, heldur alla nágrann­ana.“

Istanbul Market: „Hann hóf þetta“

Í svari eig­anda Istanbul Market, Yusuf Koca við fyr­ir­spurn Mannlífs segir hann að málið snú­ist ekki um skort á bíla­stæðum, heldur fram­ferði eig­anda BK kjúklings:

„Hann á í vand­ræðum með bíla­stæði. Hann notar ekki bíla­stæði veit­inga­stað­ar­ins síns og leggur bíl­unum sínum vís­vit­andi fyrir framan versl­un­ina mína, og hefur gert það ítrekað í marga mán­uði.“

Hann við­ur­kennir að bíla­stæðin til­heyri borg­inni, en telur hegð­un­ina óeðli­lega:

„Ég veit að bíla­stæðið til­heyrir borg­inni, en að mínu mati hefur hann ekki rétt á að haga sér á þennan hátt.“

Yusuf segir að hann hafi reynt að leysa málið í sátt:

„Ég spurði hann ítrekað hvers vegna hann not­aði ekki eigið bíla­stæði sitt og af hverju hann legði bílum sínum hér. Ég sagði honum einnig að hann gæti notað bíla­stæðið aftan við bygg­ing­una ókeypis allan dag­inn, en hann hafn­aði því.“

Hann segir jafn­framt að hann hafi aðeins brugð­ist við eftir að ágrein­ing­ur­inn hófst:

„Ég byrj­aði ekki á þessu, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins hóf þetta fyrst. Ég lagði síðan bíl fyrir framan veit­inga­stað­inn hans nokkrum sinnum, kannski í von um að hann myndi hætta.“

Yusuf hafnar ásök­unum um rasíska fram­komu og hót­anir:

„Ég er ekki ras­isti; að mínu mati er hann ras­isti.“

Hann segir jafn­framt að ásak­anir á sam­fé­lags­miðlum um hót­anir í garð fjöl­skyldu eig­anda BK kjúklings séu rangar:

„Í sumum athuga­semdum var sagt að ég hefði hótað fjöl­skyldu hans, sem er alls ekki rétt. Ég á mynd­bönd af móðg­unum og dóna­legum orðum sem hann not­aði gegn mér og mun deila þeim síðar.“

Málið hefur vakið tölu­verða athygli á sam­fé­lags­miðlum, þar sem skiptar skoð­anir eru um deil­una. Ekki liggur fyrir hvort form­leg kvörtun eða laga­legar aðgerðir hafi þegar verið settar í gang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð