Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður

Margt bendir þó til þess að brot­unum sjálfum hafi fækkað

Oftar tilkynnt um barnaníð en áður

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot til lög­reglu fjölg­aði umtals­vert á árinu 2025 sam­kvæmt nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra. Alls voru 629 kyn­ferð­is­brot til­kynnt til lög­reglu á árinu, sem jafn­gildir 13 pró­senta aukn­ingu frá árinu 2024. Æsku­lýðs­rann­sókn bendir þó til þess að kyn­ferð­is­brot­unum fækki.

Í skýrsl­unni er bæði skráð hvenær brot átti sér stað og hvenær það var til­kynnt, þar sem oft líður langur tími á milli. Á árinu var til­kynnt um 194 nauðg­anir, þar af áttu 142 sér stað á árinu sjálfu. Til­kynn­ingum um nauðg­anir fjölg­aði um fimm pró­sent frá fyrra ári, en miðað við með­al­tal síð­ustu þriggja ára þar á undan hefur þeim þó fækkað um sex pró­sent.

Sérstaka athygli vekur aukn­ing kyn­ferð­is­brota gegn börnum. Alls voru 133 slík brot til­kynnt á árinu og hefur þeim fjölgað um 18 pró­sent miðað við með­al­tal síð­ustu þriggja ára. Þá voru til­kynn­ingar um barn­a­níð 51 tals­ins, sem er 53 pró­senta aukn­ing frá fyrra með­al­tali.

Konur voru í miklum meiri­hluta brota­þola í öllum kyn­ferð­is­brotum, eða 83 pró­sent. Þegar horft er sér­stak­lega til nauð­gana voru 92 pró­sent brota­þola kven­kyns. Hlutfall grun­aðra var hins vegar yfir­gnæf­andi karlar, eða 93 pró­sent í til­kynntum kyn­ferð­is­brota­málum.

Skýrslan sýnir einnig tölu­verðan ald­urs­mun milli brota­þola og grun­aðra. Með­al­aldur brota­þola var 23 ár en með­al­aldur grun­aðra 34 ár. Um 46 pró­sent brota­þola voru undir 18 ára aldri, á meðan aðeins 12 pró­sent grun­aðra voru yngri en 18 ára. Í nauðg­un­ar­málum voru 30 pró­sent brota­þola undir 18 ára, en hlut­fall grun­aðra undir 18 ára var áfram 12 pró­sent.

Til­kynn­ingum um vændi fjölg­aði veru­lega á milli ára, úr 29 málum árið 2024 í 69 mál árið 2025. Það jafn­gildir 138 pró­senta aukn­ingu milli ára og 245 pró­senta aukn­ingu miðað við með­al­tal síð­ustu þriggja ára. Í skýrsl­unni kemur fram að slíkar sveiflur geti tengst auk­inni frum­kvæð­is­vinnu lög­reglu og áherslum stjórn­valda á bar­áttu gegn skipu­lagðri brota­starf­semi.

Þrátt fyrir fjölgun til­kynn­inga benda sumar rann­sóknir til þess að kyn­ferð­is­brotum fari fækk­andi. Nið­ur­stöður Íslensku æsku­lýðs­rann­sókn­ar­innar 2025 sýna að hlut­fall nem­enda sem segj­ast hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi full­orð­ins eða mun eldri ein­stak­lings hefur lækkað veru­lega frá árinu 2023, bæði í 8. og 10. bekk. Einnig hefur fækkað þeim sem segj­ast hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi ann­ars ung­lings.

Þolenda­könnun lög­regl­unnar fyrir árið 2025 sýnir þó að stór hluti kyn­ferð­is­brota er aldrei til­kynntur. Af svar­endum 18 ára og eldri sögð­ust 2,1 pró­sent hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­broti árið áður, en aðeins tæp­lega 10 pró­sent þeirra til­kynntu brotið til lög­reglu. Til sam­an­burðar til­kynntu 42 pró­sent þeirra sem urðu fyrir ofbeld­is­broti málið til lög­reglu.

Skýrsl­una má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð