Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Heldur Jens Garðar virkilega að það ástand sem ríkir í Palestínu sé friður?“

Jens Garðar Helgason vill senda Palest­ínu­menn aftur til Gaza.

„Heldur Jens Garðar virkilega að það ástand sem ríkir í Palestínu sé friður?“
Jens Garðar Helgason Vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins olli úlfúð vegna orða sinna Mynd: Víkingur

Ummæli Jens Garðars Helga­sonar, vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins um Palest­ínu­menn sem fengið hafa hæli hér vegna þjóð­ar­morðs­ins á Gaza, hafa væg­ast sagt vakið mikla reiði á sam­fé­lags­miðl­unum.

Í umræðu um útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra spurði Jens Garðar eft­ir­far­andi spurn­ingu:

„Hvað með þá Palest­ínu­menn sem hafa komið hér? Nú er kom­inn friður í Palest­ínu. Það er verið að skipa svo­kall­aða upp­bygg­ing­ar­nefnd fyrir Gaza. Er ekki kom­inn tími á að þeir Palest­ínu­menn sem hingað komu fari heim aftur til þess að taka þátt í því upp­bygg­ing­ar­starfi sem er framundan þar.“

Facebook fyllt­ist í kjöl­farið af færslum þar sem fólk lýsti ýmist yfir furðu eða reiði vegna ummæla Jens enda er ástandið á Gaza ennþá skelfi­legt, þar sem 80% atvinnu­hús­næða eru eyðilögð, 88% skóla­bygg­inga eru rústir einar og næstum öll heim­ili hafa verið sprengd, sam­kvæmt opin­berum tölum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þá gera Ísraelar dag­lega árásir á borg­ara Gaza, þrátt fyrir vopna­hlé.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason segir í sinni færslu að honum finn­ist leið­in­legt þegar fólk á Alþingi talar um eitt­hvað sem það hefur ekki vit á.

„Mikið er leið­in­legt að heyra fólk tala úr ræðu­stóli Alþingis um hluti sem það hefur ekki vit á eða hefur ekki nennt að kynna sér. Heldur Jens Garðar virki­lega að það ástand sem ríkir í Palest­ínu sé friður?“

Fjöl­margir skrifa athuga­semdir við færslu Egils en þar má meðal ann­ars nefna söngv­ar­ann Pálma Gunn­ars­son sem stingur upp á að Jens verði boðið í heim­sókn á Gaza.

„Ég mæli með að Jens Garðari verði boðið á Gazasvæðið til að kynna sér málið. Aug­ljós­lega veit hann ekk­ert í sinn haus þegar kemur að ástand­inu fyrir botni Mið­ar­jarð­ar­hafs. Hann gæti tekið Snorra og Sigmund Davíð með sér.“

Gauti B. Egg­erts­son hag­fræði­pró­fessor tjáir sig einnig undir færslu Egils og segir sorg­legt að sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn elta Mið­flokk­inn í leit að atkvæði.

„Dap­ur­legt að sjá helstu stjórn­mála­flokka lands­ins elta Mið­flokk­inn í von um atkvæði. Jafn­að­ar­menn far­inn í elt­ing­ar­leik­inn eins og aðrir. Sorg­legra en tárum taki. Ein­hvers­konar MAGA-væð­ing íslenskra stjórn­mála.“

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur er heldur stutt­orð­ari í sinni athuga­semd við færslu Egils:

„Móður i mann­vits­brekkunni - ævi­saga Jens Garðars.“

Stærð­fræð­ing­ur­inn og sam­fé­lags­rýn­ir­inn Einar Stein­gríms­son skrif­aði einnig færslu á Facebook og var heldur harð­orð­ari en Egill:

„Stundum er bara ekki eðli­legt að vera kurt­eis­ari en þetta: Er mað­ur­inn fáviti? Eða drullu­sokkur?“

Upp­gjafa­pró­fess­or­inn Eiríkur Rögn­valds­son tjáði sig líka í færslu nú í morgun um ummæli Jens Garðars og skefur ekk­ert af því. Segir hann orð þing­manns­ins „eitt­hvað það ómerki­leg­asta og fyr­ir­lit­leg­asta sem komið hefur frá íslenskum stjórn­mála­manni í seinni tíð.“

Eiríkur Rögn­valds­son

„Þetta er eitt­hvað það ómerki­leg­asta og fyr­ir­lit­leg­asta sem komið hefur frá íslenskum stjórn­mála­manni í seinni tíð. Það hefur verið í öllum fréttum að Gasa er ger­sam­lega í rúst. Búið er að sprengja meg­in­hluta íbúð­ar­húsa þannig að fólk - það sem eftir lifir - hefst við í skjóllitlum tjöldum í vetr­ar­kuld­anum. Heil­brigð­is­kerfið hrunið, sem og skóla­kerfið og aðrir inn­viðir. Ísrael lokar svæð­inu, heldur því í helj­ar­g­reipum, tak­markar flutn­ing mat­væla og hjálp­ar­gagna inn á svæðið og drepur þar fólk á hverjum degi þrátt fyrir "vopna­hlé".
Við þær aðstæður telur vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins að kom­inn sé "friður í Palest­ínu" og finnst "kom­inn tími á að þeir Palest­ínu­menn sem hingað komu, að þeir fari heim aftur til þess að taka þátt í því upp­bygg­ing­ar­starfi sem er fram undan þar".
Þetta er mann­vonska. Það er ekki hægt að kalla það neitt annað.“

Hér fyrir neðan má sjá ástandið á Norð­ur­hluta Gaza frá því fyrir nokkrum mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum