Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Vistaður í fangaklefa „í þágu almannafriðar og allsherjarreglu“

Fjórir gistu fangaklefa lögreglu í nótt
Fjórir gistu fanga­klefa lög­reglu í nótt 65 mál voru skráð í kerfi lög­reglu. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lögregla hafði í nógu að snúast í gær og í nótt þegar fjöldi mála kom til kasta hennar, þar á meðal innbrot, fíkniefnamál, eigna­spjöll og umferðar­lagabrot.

Karlmaður var hand­tekinn, grunaður um fjölda innbrota, og vistaður í fanga­klefa. Í öðru tilviki veitti lögregla manni eftirför á fæti þegar hann reyndi að komast undan afskiptum hennar. Hann náðist fljótt og var hand­tekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, peninga­þvætti, að hlýða ekki fyrir­mælum lögreglu og ýmis brot gegn útlendinga­lögum, meðal annars að framvísa ekki lögmætum skilríkjum og upplýsa ekki um tilgang dvalar.

Þá var tilkynnt um þjófnað í matvöru­verslun og var málið afgreitt á vettvangi. Kona var einnig kærð fyrir að aka bifreið svipt ökurétti.

Lögreglu barst tilkynning um mann sem var að valda eigna­spjöllum á bifreiðum. Þegar lögreglu­menn komu á vettvang reyndi hann að kasta stóru grjóti í lögreglu­bifreið og flúði á fæti. Hann var eltur uppi og hand­tekinn, grunaður um eigna­spjöll, brot á lögreglu­samþykkt og að hlýða ekki fyrir­mælum lögreglu, og vistaður í fanga­klefa þar til hann kemst í skýrslu­hæft ástand.

Annar maður var hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa í þágu almannafriðar og allsherjar­reglu eftir að hafa verið til ama á almanna­færi. Honum hafði áður verið gefinn kostur á að bæta ráð sitt en nýtti ekki það tækifæri.

Umferðar­eftirlit leiddi einnig í ljós alvarleg brot. Maður var hand­tekinn grunaður um að hafa ekið á 134 km/klst þar sem hámarks­hraði er 80 km/klst. Hann var undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti og reyndi auk þess að blekkja lögreglu með skilríkjum annars manns. Átta aðrir ökumenn voru kærðir fyrir hrað­akstur, meðal annars fyrir að aka á 122, 117 og 106 km/klst þar sem hámarks­hraði er 80 km/klst. Einn þeirra hafði aldrei öðlast ökuréttindi.

Tilkynnt var um rúðubrot og er það mál nú til rann­sóknar. Þá var annar ökumaður kærður fyrir að aka án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Loks voru skráningar­merki fjarlægð af fjölda bifreiða þar sem eigendur höfðu ekki staðið skil á lögboðinni vátryggingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis