Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stefán gagnrýnir hugmyndir um „rannsóknardómstól“ vegna séra Friðriks

„Það er fólk sem telur að Njáll og Gunnar hafi verið hommar… en þeir geta ekki skipað nefnd sem kveður niður kenn­ing­una í eitt skipti fyrir öll.“

Stefán gagnrýnir hugmyndir um „rannsóknardómstól“ vegna séra Friðriks
Stefán Pálsson Sagn­fræð­ing­ur­inn hugn­ast ekki hug­myndir Æru­nefnd­ar­innar

Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur gagn­rýnir harð­lega hug­myndir um að stofna félag eða vett­vang til að „hreinsa mann­orð“ Séra Friðrik Frið­riks­son og segir slíkt byggja á grund­vall­armis­skiln­ingi á eðli sagn­fræði og sögutúlk­unar. Tilefnið er nýr félags­skapur sem vill vinna gegn þeirri ímynd sem skap­ast hefur í kjöl­far ævi­sögu um séra Friðrik þar sem dregnar voru fram vís­bend­ingar um mögu­lega barna­girnd.

Í færslu sinni bendir Stefán á að ómögu­legt sé að fá end­an­lega nið­ur­stöðu í slíkum málum, enda sé við­kom­andi löngu lát­inn og engin dóms­nið­ur­staða liggi fyrir. „Aug­ljós­lega getur eng­inn lengur skorið úr um það hvort séra Friðrik braut gegn ungum drengjum, hvort hann var bara með kenndir sem hann túlk­aði á óheppi­legan hátt eða hvort allt málið sé til­bún­ingur og oftúlk­anir. En for­senda þessa nýja félags­skapar virð­ist vera furðu­legur mis­skiln­ingur á eðli sagn­fræði og þess hvernig við skynjum sög­una.“

Stefán und­ir­strikar að séra Friðrik hafi hvorki verið sak­felldur né verði nokkru sinni sýkn­aður, ein­fald­lega vegna þess að slíkt ferli sé ekki lengur mögu­legt. „Séra Friðrik hefur ekki verið sak­felldur fyrir neitt og verður því ekki sýkn­aður af neinu heldur. Sagn­fræð­ingur skrif­aði ævi­sögu guðs­manns­ins og dró fram atriði sem honum fannst benda til barna­girndar – og fjöldi fólks lét sann­fær­ast af þeim rök­stuðn­ingi.“

Hann segir að sú túlkun geti verið rétt eða röng, en henni verði ekki eytt með form­legum hætti. „Sú túlkun er kannski rétt og kannski röng, en hún verður ekki upp­rætt eða ógilt með því að setja rann­sókn­ar­dóm­stól, eins og hér virð­ist kallað eftir.“

Til að skýra sjón­ar­mið sitt dregur Stefán upp fleiri dæmi úr íslenskri sögu þar sem kenn­ingar hafa fest sig í sessi, óháð því hvort þær stand­ist fræði­lega skoðun. „Það er fólk sem telur að Njáll og Gunnar hafi verið hommar… en þeir geta ekki skipað nefnd sem kveður niður kenn­ing­una í eitt skipti fyrir öll.“ Hann nefnir einnig hug­myndir um heilsu­far Jóns Sig­urðs­sonar og sögu­sagnir um Brynjólf biskup sem hafi lifað góðu lífi í almennri vit­und þrátt fyrir veikan grund­völl.

„Eins hafa margir það fyrir satt að Jón Sig­urðs­son hafi þjáðst af sýf­illis stóran hluta ævinnar. Og Megas hefur náð að planta því hjá hálfri þjóð­inni að Brynjólfur biskup hafi getið barnið með Ragn­heiði dóttur sinni, þrátt fyrir að hafa ekk­ert fyrir sér í því. - Allt er þetta frekar ergi­legt fyrir aðdá­endur fyrr­nefndra per­sóna úr Íslands­sög­unni.“

Stefán seg­ist skilja til­finn­ingar þeirra sem standa að félag­inu Æruvernd, sem vill verja orðstír séra Friðriks, en segir að raun­hæfar leiðir séu aðrar. „Ég get alveg haft smá skiln­ing á frústra­sjónum stofn­enda félags­ins Æru­verndar sem sárnar að þeirra maður hafi bók­staf­lega verið felldur af stalli, en í raun geta þeir ekk­ert annað gert en að reyna að fá nýjan sagn­fræð­ing til að skrifa nýja ævi­sögu séra Friðriks og vona að hún verði enn betri, nái enn meiri útbreiðslu og kom­ist að öðrum nið­ur­stöðum…“

Að mati Stefáns er það eina leiðin sem sam­ræm­ist vinnu­brögðum sagn­fræð­innar, að takast á um túlk­anir með nýjum rann­sóknum, en ekki með til­raunum til að úrskurða for­tíð­ina end­an­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð