Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins

Ný bók veitir inn­sýn inn í fjöl­skyldu­líf krón­prins­ins og eig­in­konu hans

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins
Vil­hjálmur prins með Karlottu og Georg Krón­prins­inn á víst til að vera nokkuð fynd­inn Mynd: OLI SCARFF / AFP

Vil­hjálmur prins hefur upp­lýst að hann hafi sett fram óvenju­leg og óhefð­bundin nöfn þegar kom að því að nefna fyrsta barn sitt, erf­ingja bresku krún­unnar. Vil­hjálmur prins og eig­in­kona hans Katrín eign­uð­ust son­inn Georg árið 2013, en mán­uð­ina fyrir fæð­ingu hans veltu þau fyrir sér fjölda nafna.

Þetta kemur fram í nýrri ævi­sögu, William and Catherine: The Intimate Inside Story, eftir kon­ung­lega rit­stjóra The Mirror, Russell Myers. Þar segir að hjónin hafi „varið klukku­stundum“ í að rann­saka mögu­leg nöfn, og að Vil­hjálmur hafi oft komið með afar óvæntar upp­á­stungur.

Bókin, sem byggir á einka­rétt­ar­sam­tölum við fólk innan hall­ar­innar, varpar nýju ljósi á stórar stundir í lífi hjón­anna. Ein sú stærsta var þegar þau stigu út á tröppur St Mary’s-sjúkra­húss­ins í Lundúnum og kynntu frum­burð sinn fyrir heim­inum.

Samkvæmt bók­inni hófu Vil­hjálmur og Katrín að und­ir­búa komu barns­ins þegar Katrín var komin fimm mán­uði á leið og ákváðu að halda kyni barns­ins leyndu fram að fæð­ingu. Þau keyptu því barna­vörur í hlut­lausum litum. Hins vegar reynd­ist erfitt að kom­ast að sam­komu­lagi um nafn.

Myers skrifar að Katrín hafi helst viljað nafnið Alex­ander fyrir dreng eða Alex­andra fyrir stúlku, sem var einnig milli­nafn Elísa­betar drottn­ingar. Vil­hjálmur hafi hins vegar í ein­rúmi lýst yfir ósk um að eign­ast stúlku og viljað heiðra móður sína, Díönu prinsessu, með milli­nafni.

Samkvæmt heim­ildum bók­ar­innar skipt­ist Katrín á hug­myndum við vin­konur sínar sem nýlega höfðu eign­ast börn. Vinur gaf þeim jafn­framt bók með barna­nöfnum, sem þau flettu í klukku­stundum saman, oft með hlátra­sköllum þegar annað hvort þeirra kom með „enn furðu­legri upp­á­stungu“.

Kon­ung­legar heim­ildir segja að Vil­hjálmur hafi jafn­vel byrjað fundi með fjöl­miðlateymi sínu á að kasta fram nöfnum á borð við: „Hvað finnst ykkur um Rodney fyrir strák, eða kannski Graham?“, áður en hann sprakk úr hlátri.

Þrátt fyrir grín og óhefð­bundnar hug­myndir valdi Vil­hjálmur að lokum hefð­bundn­ari leið. Hann hafði tvö nöfn á loka­stigi fyrir son sinn: Georg og Lúðvík en fullu nafni heitir prins­inn ungi Georg Alex­eander Lúðvík .

Ævisagan fjallar einnig um hvernig Vil­hjálmur vernd­aði börn sín í kjöl­far krabba­meins­grein­ingar Katrínar, hvernig hjónin brugð­ust við opin­berum ásök­unum Harrý prins og Meghan Markle, og ágrein­ing Vil­hjálms við föður sinn, Karl III, vegna frænda hans, Andrew Mountbatten-Windsor (áður Andrés prins).

Russell Myers segir bók­ina gefa óvenju náið yfir­lit yfir líf hjón­anna, allt frá kynnum þeirra í St Andrews-háskól­anum til dags­ins í dag, og sýni hvernig þau hafi mótað sýn sína á nútíma­legt kon­ung­dæmi á tímum mik­illa breyt­inga og óvissu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta