Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Kallað eftir sniðgöngu á Frida Baby vegna kynferðislegra auglýsinga

„Trekantur: Þegar smábarnið þitt skríður upp í rúm og tekur 70 prósent af plássinu.“

Ein af auglýsingunum
Ein af aug­lýs­ing­unum Ósmekk­egt er það, þykir mörgum Mynd: X.com

Gagnrýni fer nú vaxandi gegn sænska ungbarna­vörumerkinu Frida Baby, sem er sakað um að nota kynferðislegar tvíræðar vísanir í auglýsingum og á umbúðum barna­vara.

Vöru­merkið, sem var stofnað í Svíþjóð og er nú selt víða um heim, meðal annars í Banda­ríkjunum og Bretlandi, er þekkt fyrir vörur á borð við „Näsfrida“-snýtu­suguna og „Windi“-pysventil“ fyrir ung börn.

Á samfélags­miðlum hafa nú farið í dreifingu skjáskot af eldri, enskum auglýsingum og umbúðum fyrir­tækisins. Þar er fyrir­tækið sakað um að nota kynlífs­brandara í markaðs­setningu á barna­vörum.

Ein gagnrýnin færsla á X, sem hefur farið eins og eldur í sinu og verið skoðuð yfir 4,7 milljón sinnum, lýsir auglýsingunum sem „hræðilegum og viðbjóðs­legum“.

Í einni eldri auglýsingu sést teiknuð rasskinn barns við endaþarms­hitamæli, með textanum:

„Þetta er það næsta sem maðurinn þinn kemst trekanti.“

Á hlið pappírs­umbúða hita­mælisins stendur einnig:

„Hvað segirðu um sjortara?“

Í leið­beiningum með einum af rakamælum fyrir­tækisins má finna setninguna:

„Ég æsist auðveldlega.“

Eftir því sem gagnrýnin hefur aukist hafa fleiri eldri auglýsingar komið upp á yfir­borðið. Í einni færslu er hugtakið „trekantur“ skilgreint svona:

„Trekantur: Þegar smábarnið þitt skríður upp í rúm og tekur 70 prósent af plássinu.“

Í annarri færslu, dagsettri 2. apríl 2020, sést barn með hor á enninu. Undir myndinni stendur:

„Það sem gerist ef þú dregur of hratt út,“ ásamt myllu­merkinu „#dontmove“.

Í athuga­semdum segja margir foreldrar að fyrir­tækið hafi farið yfir strikið og að slíkur húmor eigi ekki heima í markaðs­setningu á barna­vörum. Sumir hafa jafnvel hvatt til sniðgöngu á vörum Frida Baby.

Sænski frétta­miðillinn Aftonbladet leitaði eftir viðbrögðum fyrir­tækisins en í yfir­lýsingu sem Frida Baby sendi nokkrum fjöl­miðlum segir meðal annars:

„Frá upphafi hefur Frida notað húmor til að tala um raun­verulegu, hráu og stundum óþægilegu hliðar foreldra­hlut­verksins, hluti sem oft er ekki rætt um. Við gerum það vegna þess að foreldra­hlutverkið getur verið einangrandi og yfir­þyrmandi, og stundum er léttleiki það sem gerir erfiðar aðstæður mannlegri, sameiginlegri og yfirstíganlegri.“

Yfir­lýsingin heldur áfram:

„Vörur okkar eru ætlaðar börnum, en við höfum alltaf beint orðræðu okkar að þeim fullorðnu sem annast þau. Ætlun okkar hefur verið að gera vandræðalegar og erfiðar aðstæður auðveldari, heiðarlegri og minna einangrandi fyrir foreldra.“

Að lokum segir fyrir­tækið að húmor sé einstaklings­bundinn:

„Það sem einum foreldri finnst fyndið getur verið of mikið fyrir annan. Við reynum aldrei að móðga, ögra til að vekja athygli eða gera fólk óþægilegt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu