Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég“

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg
Birta Blanco Birtu sár­vantar íbúð Mynd: Aðsend

Birta Blanco, ein­stæð móðir í Reykja­vík, segir stöðu sína dæmi um alvar­legt hús­næðisó­ör­yggi sem bitni sér­stak­lega á ein­stæðum for­eldrum með heilsu­vanda og börn með sér­þarfir. Hún lýsir margra mán­aða óvissu, von­brigðum og skorti á svörum frá kerf­inu, eftir að hún missti hús­næði sitt og hafn­aði í bið eftir félags­legri íbúð sem hún taldi sig hafa verið lof­aða.

Birta er þriggja barna móðir, með tvö barna sinna í sinni umsjá en hún hefur verið floga­veik frá fimm ára aldri.

„Er þriggja barna móðir með tvö þeirra í umsjá. 10 ára og tveggja ára. Er floga­veik sem ger­ist undir miklu álagi og streitu. Er í grein­ing­ar­ferli við POTS líka. Elsta barn er í grein­ing­ar­ferli við ADHD og ein­hverfu,“ segir Birta í sam­tali við Mannlíf fyrir síð­ustu helgi.

Hún segir að staða hennar hafi legið fyrir í langan tíma.

„Já þetta hefur verið vitað síðan í sept­em­ber í fyrra, ef ekki fyrr. Er sem sagt í end­ur­hæf­ingu og með ráð­gjafa þar sem vissi að ég væri að fara missa hús­næðið þar sem leigusal­inn minn þurfti að flytja inn vegna óvið­ráð­an­legra aðstæðna.“

Birta hóf strax leit að nýju hús­næði.

„Ég byrj­aði strax að leita á almennum leigu­mark­aði og var á lista yfir félags­legu hús­næði. Ég fékk að skoða tvær íbúðir á almenna.“

Í kjöl­farið frétti hún af sér­tæku félags­legu úrræði fyrir ein­stæðar mæður.

„Frétti svo af Ellunni sem er félags­legt hús­næði fyrir ein­stæðar mæður og aðra með sér­þarfir. Þar eru ráð­gjafar.“

Hún segir að hún hafi, í sam­ráði við ráð­gjafa sinn, lagt áherslu á það úrræði til að auka líkur sínar.

„Ég bað ráð­gjafann minn um að huga að íbúðum þar fyrir mig líka til að auka lík­urnar mínar á félags­legri íbúð.“

Birta seg­ist hafa fengið sam­þykki fyrir íbúð á almennum leigu­mark­aði, en ákveðið að hafna henni eftir fund með ráð­gjöfum í Ellunni.

„Svo fékk ég mig sam­þykkta fyrir einni íbúð­inni á almenna leigu­mark­að­inum og svo var eitt­hvað spjall um trygg­ingu sem ég þurfti að spyrja ráð­gjafann minn um en þá er ég boðuð á fund með ráð­gjöfum í Ellunni og þar mér gefnar miklar vonir um að fá íbúð þar, þar sem þær sögðu mér á þessum fundi í nóv­em­ber að það væri að losna íbúð í byrjun des­em­ber.“

Hún segir ákvörð­un­ina hafa verið tekin í trausti á félags­lega kerf­inu.

„Vegna þessa þá hætti ég við að taka íbúð­inni á almenna mark­að­inum þar sem Féló er örugg­ara en leigu­mark­að­ur­inn og byrj­aði þá biðin fyrir íbúð­inni í Ellunni.“

Birta lýsir síðan löngu tíma­bili óvissu og sífelldra frest­ana.

„Ég á mörg e-mail á milli mín og ráð­gjafa míns um að ég fengi hana og spyr ég mikið hver staðan er og alltaf lengd­ist bið­tím­inn þar sem það þurfti að stand­setja og laga íbúð­ina.“

Þrátt fyrir að íbúðin hafi losnað í des­em­ber hafi hún aldrei fengið afdrátt­ar­laust svar.

„Íbúðin losnar í byrjun des­em­ber og þurfti ég að flytja út í byrjun jan­úar. Nú situr allt inn­búið í geymslu síðan þá og hef ég ekki fengið nein svör um þessa íbúð. Bara að hún er í vinnslu.“

Í byrjun síð­ustu viku segir hún að henni hafi verið gert ljóst að engar trygg­ingar væru í raun fyrir úthlut­un­inni

„Svo í byrjun þess­ara viku fæ ég að vita að það eru svo ekk­ert 100% að ég fái þessa íbúð úthlut­aða … Það er víst bara hægt að „mæla með mér“ á úthlut­unar fundum 1x í viku.“

Birta seg­ist hafa leitað allra hugs­an­legra leiða til að fá aðstoð.

„Ég er búin að senda email á alla og ömmu þeirra sem tengj­ast Reykja­vík­ur­borg, búa til könnun um hús­næðisó­ör­yggi, skoða allt um hús­næði fyrir heim­il­is­laust fólk en finn bara fyrir fíkla og fólk í ofbeld­is­sam­bandi, senda á Rúv, Vísi og aðra frétta­miðla til að fá ein­hverja umfjöllun, alla stjórn­mála­flokka og búin að senda inn kvörtun til Gæða- og eft­irt­ir­lits­stofn­unar vel­ferða­mála og heyra í hús­næð­is­full­trúa Aust­ur­mið­stöðvar og benda for­seta Íslands á stöðu mála.“

Að hennar sögn er staða hennar ekki eins­dæmi.

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég og láta sig bara hafa það af því þær halda að Reykja­vík­ur­borg/féló hafa þeirra hags­muni í huga. Raunin er bara allt önnur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð