Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Segir heiminn nú standa frammi fyrir „miklum skelfingum, mannfalli og flóttamannastraumi“

„Það eru engar hömlur á eyðingar­mætti mesta herveldis heims og skugga­stjórnendum þess í Ísrael“

Ayatollah Ali Khamenei minnst
Aya­tollah Ali Khamenei minnst Fjöldi manns safn­að­ist saman til að minn­ast leið­tog­ans sem drep­inn var í árásum í gær Mynd: ATTA KENARE / AFP

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, gagnrýnir harðlega árásir Ísraels og Bandaríkijanna á Íran og varar við alvarlegum afleiðingum þeirra í tveimur Facebook-færslum sem hann birti í kjölfar aðgerð­anna. Þar segir hann Ísrael hafa hafið stríð gegn Íran með virkum stuðningi Bandaríkja­hers, að hans mati án lögboðins samþykkis bandaríska þingsins.

„Þá hefur Ísrael hafið stríð gegn Íran og nýtur aðstoðar dyggra þjóna í Bandaríkjaher sem er att fram af forseta landsins án þess að hann hirði um að sækja lögboðið samþykki eigin þings,“ skrifar Kristinn. Hann segir jafnframt „svakalegt að frekar lítið ríki geti beitt fyrir sig slíkum hernaðar­mætti til að þjóna eigin ofbeldis­hagsmunum“.

Kristinn vísar til leiðara í The New York Times, þar sem spurt sé: „hvers vegna hefur þú byrjað þetta stríð, herra forseti?“ Að hans mati sé um eðlilega spurningu að ræða í ljósi þess að engar skýrar útskýringar hafi verið gefnar á því hvernig stríðið eigi að þjóna hagsmunum Bandaríkja­manna. „Svarið er vitaskuld augljóst,“ bætir hann við og segir þá sem vonist eftir betri framtíð fyrir Írana og heiminn eftir átökin geta „deyft þá von með því að líta til annara stríða sömu árásar­afla á þessari öld“.

Í færslunni beinir Kristinn einnig sjónum að íslenskum stjórn­völdum og spyr: „Mun ríkis­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur fordæma þetta stríð?“

Í seinni færslu sinni fjallar hann nánar um yfir­lýstan tilgang árásanna og vísar þar til Donald Trump. „Trump er skýr í að viðurkenna að tilgangur stríðsins sé valda­skipti,“ skrifar Kristinn og bendir á að slíkt hafi aldrei áður tekist með loft­árásum einum saman. Hann útilokar þó ekki að það gæti gerst í fyrsta sinn, en varar við alvarlegum afleiðingum ef það mistekst.

„Ef það tekst ekki með gengdar­lausu sprengju­regni næstu daga og vikur hefur Trump valkostinn að viðurkenna árangurs­leysi aðgerða, sum sé ósigur, eða senda landher inn í Íran,“ segir Kristinn. Hann telur mikla hættu á að heimurinn standi frammi fyrir „miklum skelfingum, mannfalli og flóttamanna­straumi“ og bætir við að fyrri reynsla bendi eindregið til þess að sú verði raunin.

Að lokum lýsir Kristinn von um að svart­sýnar spár hans rætist ekki, en segir jafnframt: „Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en það eru engar hömlur á eyðingar­mætti mesta herveldis heims og skugga­stjórnendum þess í Ísrael.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra