Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Veruleikinn er orðin svo sturlaður að hvergi virðist standa steinn yfir steini“

Auður Jóns­dóttir gagn­rýnir með­virkni Vest­ur­landa í stríði gegn Íran

„Veruleikinn er orðin svo sturlaður að hvergi virðist standa steinn yfir steini“
Auður Jónssdóttir Auður er ósátt við Vest­ur­lönd Mynd: Wikipedia

Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur og blaða­maður, gagn­rýnir harð­lega árásir Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran í Facebook-færslu þar sem hún dregur í efa rök­semdir Vest­ur­landa og for­dæmir það sem hún kallar með­virkni gagn­vart ofbeldi Ísraels.

Í færsl­unni bendir Auður á mót­sagnir í alþjóða­stjórn­málum og skrifar:

„Tvær kjarn­orku­vopn­aðar þjóðir, banda­lags­þjóð­irnar Banda­ríkin og Ísrael (talið er víst að Ísraelar búi yfir kjarn­orku­vopnum) ráð­ast á þá þriðju til að koma í veg fyrir að hún komi sér upp slíkum vopnum. Á sama tíma og Ísrael hefur staðið fyrir þjóð­ar­morði í Palest­ínu, án þess að þurfa að svara fyrir það. Með­virkni vest­rænna þjóða er svaka­leg.“

Hún lýsir einnig umfjöllun evr­ópskra fjöl­miðla og nefnir sér­stak­lega frétta­flutn­ing Der Spiegel. Þar seg­ist hún hafa séð „frétta­þul í víd­eói þylja upp, í tóni sam­kenndar, hvernig Ísraelar hafi legið í rúmum sínum klukkan 8:15 á stað­ar­tíma við að smartsímar þeirra klyngdu með skila­boðum þess efnis að fólk ætti að búa sig undir gagnárás vegna árása fyrr­nefndra þjóða á Íran“. Hún bætir við að sýndar séu „myndir frá fólki í sprengju­byrgi í Tel Aviv og dáðst að ró og aga þeirra í þeim kring­um­stæðum – og tekið fram að ekki megi gleyma því að Ísraelar hafi nú sleitu­laust í tvö ár setið undir stríðs­á­standi“.

Í kjöl­farið vísar Auður til umfjöll­unar þar sem Donald Trump flytji „her­ræðu sína með afkára­lega USA-der­húf­una um hryðju­verka­menn sem baða jörð­ina blóði“, á meðan Sky News sýni Benjamin Net­anyahu tala „um hvernig þurfi að sigr­ast á morð­óðri þjóð“.

Auður bendir jafn­framt á umfjöllun RÚV, þar sem sagt sé frá sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu leið­toga Frakk­lands, Þýska­lands og Bret­lands. Hún vitnar orð­rétt í yfir­lýs­ing­una:

„Frakk­land, Þýska­land og Bretland hafa ítrekað hvatt írönsk stjórn­völd til að hætta við kjarn­orku­á­ætlun lands­ins, draga úr eld­flauga­á­ætlun sinni, hætta að valda óstöð­ug­leika á svæð­inu og í löndum okkar, og að hætta hræði­legu ofbeldi og kúgun gegn sinni eigin þjóð.“

Að hennar sögn kemur jafn­framt fram að ríkin þrjú hafi ekki tekið þátt í árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels, en séu í nánu sam­starfi við banda­menn sína, þar á meðal Ísrael. „Og þannig er Ísrael, blóð­ugt af þjóð­ar­morði, normalíserað sem banda­maður,“ skrifar hún.

Að lokum vísar Auður til fréttar í íranska rík­is­fjöl­miðl­inum IRNA, þar sem segir „að minnsta kosti 40 manns hafi verið drepin eftir að Ísraelar réð­ust á grunn­skóla fyrir stelpur í borg­inni Minab“ [Nú er komið í ljós að yfir 100 voru drepin í árásinni]. Hún bætir við: „Þær hljót­ast þá að hafa flokk­ast sem þetta hræði­lega fólk sem Trump er umhugað um að eyða.“

Færslu sinni lýkur Auður með þeim orðum að „veru­leik­inn er orðin svo sturl­aður að hvergi virð­ist standa steinn yfir steini“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina