Lögregla hafði í nótt og í gær afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðarlagabrota og barst jafnframt tilkynning um nytjastuld og umferðarslys.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var einnig haft afskipti af öðrum ökumanni sem reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og jafnframt sviptur ökuréttindum.
Tilkynnt var um nytjastuld og er það mál til rannsóknar.
Umferðarslys varð í Garðabæ þar sem einn aðili var fluttur á bráðamóttöku með minniháttar áverka. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu.
Loks var ökumaður stöðvaður þar sem ljósabúnaður bifreiðar hans var óvirkur. Sá á von á sekt vegna brotsins.































Athugasemdir