Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

„Það er svo þunn filman sem skilur líf og dauða“

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum
Gunnar Smári Egilsson Gunnar Smári skrifar fal­lega um her­berg­is­fé­laga sinn Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Gunnar Smári Egilsson, rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, sem nú liggur á sjúkra­húsi eftir að hafa fengið blóð­tappa í fót, lungu og hjarta, greindi frá per­sónu­legri reynslu sinni af dvöl­inni á spít­al­anum í Facebook-færslu sem hann birti rétt í þessu.

Í færsl­unni segir hann frá her­berg­is­fé­laga sínum á deild­inni sem lést í gær.

„Her­berg­is­fé­lagi minn sagði þegar ég kom á deild­ina að ég myndi ná mér fljótt, ég væri svo ungur. Hann myndi hins vegar ekki útskrif­ast sjálfur,“ skrifar Gunnar Smári og bætir við að spáin hafi reynst rétt. „Og það var rétt hjá honum, hann dó í gær á stof­unni okkar, hafði þó ekki verið mikið öðru­vísi þann dag­inn.“

Gunnar Smári segir að atburð­ur­inn hafi minnt hann á hversu stutt er á milli lífs og dauða. „Það er svo þunn filman sem skilur líf og dauða.“

Hann lýsir síð­ustu augna­blik­unum áður en her­berg­is­fé­lagi hans lést og segir að þeir hafi átt stutta en hlýja sam­veru. „Ég sagði honum að ég ætl­aði í göng­una mína fram og til baka eftir spít­ala­gang­inum og hann horfði á mig mildum svip, var fal­legur og hlýr maður. Og dó fáeinum mín­útum síðar.“

Eftir and­látið komu dætur manns­ins á deild­ina. Gunnar Smári seg­ist hafa viljað segja þeim hversu góð kynni hans af föður þeirra hefðu verið, en ekki treyst sér til þess. „Dætur hans komu á deild­ina þegar hann var dáinn, mig lang­aði að segja þeim hvað stutt kynni mín af föður þeirra hefðu verið góð og fal­leg en ég kom mér ekki til þess, sorgin býr til gjá sem ég kann ekki að stökkva yfir.“

Hann segir að upp­lifunin hafi vakið hjá sér minn­ingar um eigin missi í æsku. „Ég hugs­aði að þarna hefðu litlar stúlkur misst föður sinn, eins og þegar mamma dó og ég fann að það var litli dreng­ur­inn inn í mér sem var að missa mömmu sína, ekki gamli mað­ur­inn sem ég var orð­inn. Þess vegna var það svo sárt.“

Í lok færsl­unnar segir Gunnar Smári að hann skrifi þessi orð til að deila hug­leið­ingum sínum um lífið og við­kvæmni þess. „Ég skrifa þetta því hér út í tómið. Þegar lífið er veikt er það líka fal­legt, í litlu lífi kjarn­ast oft stór sann­indi. En stundum bægir ótt­inn þeim frá og við sjáum ekk­ert, verðum skelfd. Það átti ekki við um her­berg­is­fé­laga minn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá