Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður

„Ég treysti þjóð­inni til að hafa vit á þessu“

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður
Helga Vala Helga­dóttir Helga Vala hefur trú á þjóð­inni Mynd: Heimildin/Heiða Helgadóttir

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir harð­lega það sem hún kallar óttapóli­tík í umræðu um mögu­legar samn­inga­við­ræður Íslands við Evr­ópu­sam­bandið.

Í færslu á sam­fé­lags­miðlum segir hún að hún hafi séð til­raunir til að vekja ótta meðal almenn­ings um að full­veldi Íslands sé í hættu ef þjóðin sam­þykkir í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að hefja við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið.

„Ég rek augun í það hér í morg­unsárið nú skal alið á ótta þjóð­ar­innar um að full­veldi lands­ins sé í hættu sam­þykki þjóðin í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í haust að fara í samn­inga­við­ræður við hin full­valda ríki sem standa saman að Evr­ópu­sam­band­inu,“ skrifar Helga Vala.

Hún segir að í umræð­unni sé meðal ann­ars verið að deila myndum úr sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga gegn Dönum til að und­ir­strika mál­flutn­ing­inn.

Helga Vala leggur áherslu á að full­veldi ríkja felist meðal ann­ars í því að þau geti gert alþjóð­lega samn­inga. „Um þetta vil ég segja, við notum okkar full­veldi við gerð þjóð­rétt­ar­samn­inga. Það geta ekki nema full­valda ríki staðið að gerð slíkra samn­inga og það er á grund­velli þess sem gengið er til sam­starfs við önnur full­valda Evr­ópu­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Til að skýra þetta líkir hún stöð­unni við rétt ein­stak­linga til að gera samn­inga. „Við getum líkt þessu við lög­ræði ein­stak­linga. Ólögráða ein­stak­lingur getur ekki gert skuld­bind­andi samn­inga, en það geta lög­ráða ein­stak­lingar.“

Hún segir jafn­framt óraun­hæft að krefj­ast þess að fyr­ir­fram liggi nákvæm­lega fyrir hvað verði samið um áður en við­ræður hefj­ast.

„Að gera þá kröfu að það liggi fyrir, lið fyrir lið, um hvað verður samið, áður en gengið er að samn­inga­borð­inu er auð­vitað ekki væn­legt til árang­urs, enda værum við þá varla að tala um samn­inga­við­ræður.“

Að hennar sögn eigi Ísland að mæta til mögu­legra við­ræðna sem stolt og full­valda þjóð með sínar kröfur, en án þess að úti­loka fyr­ir­fram hvaða mál verði rædd.

Helga Vala bendir einnig á að ef samn­ingar næð­ust myndi þjóðin sjálf taka end­an­lega afstöðu til þeirra. „Ef samn­ingar nást, þá mun þjóðin hafa síð­asta orðið, eins [og] sátt­máli Evr­ópu­sam­bands­ins mælir fyrir um.“

Að lokum segir hún mik­il­vægt að stjórn­mála­menn forð­ist að nota ótta sem póli­tískt vopn. „Ég treysti þjóð­inni til að hafa vit á þessu, en þá skiptir máli að póli­tíkusar stundi ekki blekk­ingar og óttapóli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum