Myndband náðist af því er eldur braust út í sendiferðabifreið á þjóðveginum nærri Úlfarsfelli.
Halldór Sigurðsson birti fyrir stuttu tvö myndskeið sem hann tók klukkan 12:45 í dag. Mannlíf ræddi við hann og fékk það staðfest að engin meiðsl hafi orðið á fólki. Slökkviliðið staðfesti einnig að slökkt hafi verið í eldinum en vakthafandi slökkviliðsmaður sem Mannlíf ræddi við var nýkominn á vaktina og gat því litlar upplýsingar gefið, þótt hann glaður vildi.
Hér fyrir neðan má sjá annað myndskeið Halldórs af hinum brennandi bíl.































Athugasemdir