Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Katla Sólnes hlýtur virtan Hollywood-styrk

Katla er fyrst Norð­ur­landa­búa til að hljóta við­ur­kenn­ing­una

Katla Sólnes hlýtur virtan Hollywood-styrk
Katla Sólnes Katla er einn efni­leg­asti hand­rita­höf­undur Norð­ur­land­anna Mynd: Alda Valentína Rós

Íslenski hand­rits­höf­und­ur­inn og leik­stjór­inn Katla Sólnes hefur hlotið einn virtasta hand­rits­styrk heims, svo­nefndan Nicholl-styrk Banda­rísku kvik­mynda­aka­dem­í­unnar, fyrir hand­rit að kvik­mynd í fullri lengd.

Styrk­ur­inn er veittur af Kvik­mynda­aka­dem­í­unni í Hollywood og felur í sér bæði við­ur­kenn­ingu á hæfi­leikum höf­undar, auk hand­leiðslu og aðgangs að víð­tæku tengsla­neti innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins.

Katla er jafn­framt fyrsti hand­rits­höf­und­ur­inn frá Norð­ur­lönd­unum sem hlýtur styrk­inn frá upp­hafi, en hann hefur verið veittur frá árinu 1986.

Hún útskrif­að­ist með MFA-gráðu frá Columbia-háskóla í New York árið 2024 og hefur áður vakið athygli fyrir verk sín, meðal ann­ars með við­ur­kenn­ingum frá Alfred P. Sloan-sjóðnum. Þá var hún einnig valin í Sundance Screenwriters Lab, eina virt­ustu hand­rita­smiðju heims.

Nicholl-styrkirnir hafa í gegnum tíð­ina reynst mik­il­vægur stökk­pallur fyrir hand­rits­höf­unda. Meðal fyrri styrk­þega er Susannah Grant, sem skrif­aði síðar kvik­mynd­ina Erin Brockovich og hlaut Ósk­arsverð­launa­til­nefn­ingu fyrir hand­ritið.

Í ár var nýtt alþjóð­legt val­kerfi tekið upp, þar sem yfir 500 með­limir Aka­dem­í­unnar komu að mati hand­rita í sam­starfi við 40 kvik­mynda­skóla og fag­stofn­anir víðs vegar um heim­inn. Aðeins tveir aðrir hand­rits­höf­undar og tvö hand­ritsteymi hlutu styrk­inn að þessu sinni.

Í til­kynn­ingu Aka­dem­í­unnar segir að hópur styrk­þega sé „óvenju sterkur, fjöl­breyttur og alþjóð­legur hópur nýrra höf­unda sem end­ur­spegli fram­tíð frá­sagn­ar­listar“.

Handrit Kötlu ber vinnu­tit­il­inn Og jörðin klofn­aði alelda (Eruption) og ger­ist á Íslandi snemma á átt­unda ára­tugnum. Sagan fjallar um hjóna­band tveggja jarð­fræð­inga sem fer að reyna á þegar metn­að­ar­fullur starfs­nemi frá Banda­ríkj­unum kemur inn í líf þeirra.

Fram­leiðsla mynd­ar­innar verður í höndum Antons Mána Svans­sonar fyrir fram­leiðslu­fyr­ir­tækið STILL VIVID. Anton hefur áður komið að fram­leiðslu á kvik­myndum á borð við Hvítur, hvítur dagur, Hjarta­steinn og Volaða land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Brotin áttu sér stað á fimm ára tímabili þegar ferill Russells Brand stóð sem hæst á fyrsta áratug aldarinnar.
Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Menning

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Tónlist hennar hefur fengið yfir milljón streymi á einu ári. Almenningur getur kosið um áhorfendaverðlaunin til 31. desember.
Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið