Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öll einkanot af þyrlum Landhelgisgæslunnar óheimil

Nokkur ár eru síðan Áslaug Arna flaug með þyrlu gæsl­unnar í hesta­ferð

Öll einkanot af þyrlum Landhelgisgæslunnar óheimil
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Dóms­mála­ráð­herra hefur sett reglu­gerð um nýt­ingu loft­fara og skipa Land­helg­is­gæslu Íslands í verk­efnum sem falla utan lög­bund­inna og samn­ings­bund­inna verk­efna stofn­un­ar­innar en greint er frá þessu í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Regl­urnar eru settar með það að mark­miði að tryggja gagn­sæi, ábyrgð og skýra umgjörð um slíka nýt­ingu.

„Samkvæmt regl­unum er heim­ilt að nýta loft­för og skip Land­helg­is­gæsl­unnar í tengslum við opin­berar skyldur eða verk­efni stjórn­valda, svo sem vegna óvæntra atburða sem krefj­ast skjótra flutn­inga, form­legra athafna sem ekki er hægt að mæta með öðrum hætti, alþjóða­sam­starfs, for­varn­ar­starfs, fræðslu og kynn­ingar á björg­un­ar­tækjum rík­is­ins, sem og í góð­gerð­ar­verk­efnum. Ávallt er skil­yrði að hag­kvæmni sé gætt og að nýt­ingin hafi ekki áhrif á getu stofn­un­ar­innar til að sinna lög­bundnu hlut­verki sínu.

Land­helg­is­gæslan metur hverju sinni hvort skil­yrði fyrir slíkri notkun séu upp­fyllt og heldur skrá yfir allar sam­þykktar beiðnir. Þá ber stofn­un­inni að upp­lýsa dóms­mála­ráðu­neytið um allar slíkar ferðir, til­gang þeirra og áhrif á starf­semi,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

Ráðherra skutlað í hestaferð

Í til­kynn­ingu stjórn­valda er tekið fram að það sé sér­stak­lega kveðið á um að öll einka­not af loft­förum og skipum Land­helg­is­gæsl­unnar séu óheimil en árið 2020 hlaut Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, mikla gagn­rýni fyrir þyrlu­ferð sem hún fór í.

Var hún þá sótt af þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar þegar hún var í hesta­ferð á Suð­ur­landi til þess að fara á sam­ráðs­fund Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra vegna COVID-19 far­ald­urs­ins en fund­ur­inn var hald­inn í Reykja­vík. Áslaug Arna var ekki á meðal þeirra sem fluttu ræður á fund­inum. Samkvæmt heim­ildum Heim­ild­ar­innar sat hún þó og hlust­aði á ræður, en yfir­gaf fund­inn þegar hóp­vinna hófst.

Var hún svo í kjöl­farið flutt aftur í hesta­ferð­ina af þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar.

Áslaug við­ur­kenndi síðar að um mis­tök hafi verið ræða og gerði Rík­is­end­ur­skoðun alvar­legar athuga­semdir við flug hennar íúttekt á Land­helg­is­gæsl­unni sem birt var árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina