Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

„Það læð­ist að manni sá grunur að þetta sé hluti af stærra plani hjá þessu liði“

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu
Stefán Einar Stef­áns­son stýrir þætt­inum Spursmál Er sýndur í vef­sjón­varpi mbl.is Mynd: Skjáskot / mbl.is

Blaða­mað­ur­inn og sið­fræð­ing­ur­inn umdeildi Stefán Einar Stef­áns­son blæs lífi í sam­sær­is­kenn­ingu sem hefur gengið meðal öfga­hægri­manna Íslandi und­an­farnar vikur.

Í stuttu máli gengur sú kenn­ing út á að núver­andi rík­is­stjórn, ásamt ákveðnum íslenskum fjöl­miðlum, hafi með­vitað gert líf Íslend­inga verra til þess að gera inn­göngu í ESB meira heill­andi.

Í færslu sem Stefán birtir á Facebook ræðir hann frétt sem Berl­ingske skrif­aði um íslenskan sjáv­ar­út­veg á máta sem sið­fræð­ing­ur­inn er ósáttur við en blaða­mað­ur­inn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heim­ild­ar­menn, meðal þeirra eru stjórn­mála­menn, sér­fræð­ingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjáv­ar­út­vegi. Einn þeirra sem Olsen ræddi við er Daði Már Krist­ó­fers­son, fjár­mála­ráð­herra Íslands.

„Þetta er hinn danski Þórður Snær Júl­í­us­son. Maður sem í skjóli blaða­mennsku heggur í fólk og sam­fé­lög án þess að skeyta um heiður eða skömm. Hann hefur nú ritað dóma­dags­þvælu í Berl­ingske sem dregur upp þá mynd af Íslandi að það sé lík­ast Rúss­landi á árunum eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. Hér sé við lýði ein­hvers­konar ólig­ar­kía sem stýrt sé af fámennum hópi gjör­spilltra manna,“ skrifar Stefán.

„Það er með öllu óskilj­an­legt að virtur mið­ill í Danmörku láti svona lagað frá sér og það geta vart liðið margir dagar uns hann dregur efnið til baka og rekur þennan njóla. Hann er auð­vitað í slag­togi við Aðal­stein Kjart­ans­son og Helga Seljan sem í und­ar­legu sam­krulli RÚV, Heim­ild­ar­innar, áður Stund­ar­innar og Kjarnans, telja það sitt æðsta og mesta verk að kné­setja íslenskan sjáv­ar­út­veg eins og við þekkjum hann í dag,“ heldur hann áfram.

Stóra planið

„Vegna þess að sú atvinnu­grein hefur vaxið að afli og orðið til þess að afla íslensku sam­fé­lagi, útgerð­ar­mönnum og sjó­mönnum auð­sældar þá skal allt gert til að sverta hana, meðal ann­ars í augum umheims­ins.

Það læð­ist að manni sá grunur að þetta sé hluti af stærra plani hjá þessu liði. Reyna að veikja stöðu sjáv­ar­út­vegs­ins enn frekar í augum almenn­ings á Íslandi, svo fólk sé reiðu­búið til þess að kasta honum fyrir róða í von um skjót­feng­inn gróða af upp­töku evru eða 100 þús­und blað­síðum af reglu­verki um allt og ekk­ert milli him­ins og jarðar.

En það er ömur­legt þegar fjöl­miðla­menn ganga fram, af þekk­ing­ar­leysi eða hreinni mein­fýsni og draga upp ramm­skakka mynd af atburðum eða aðstæðum sem þeim er trúað til að fjalla um. Emil Eire Frerk Olsen fellur í þann fúla pytt að þessu sinni. Það kemur ekki á óvart þegar félags­skap­ur­inn er skoð­aður. Fyrir honum fer að lokum eins og Lasse Skytt. Margir muna hvernig þar var reitt til höggs og hvað stóð eftir þegar rykið var sest,“ skrifar Stefán svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ