Finnski ferðaáhrifavaldurinn Ali Leiniö er látinn, 49 ára að aldri, eftir að hafa fengið banvænt krampakast á göngu í óbyggðum Lapplands í Finnlandi. Þetta kemur fram í umfjöllun dagblaðsins Helsingin Sanomat.
Leiniö fannst látinn í Käsivarre-óbyggðasvæðinu fyrr í mánuðinum, en talið er að hann hafi verið einn á ferð þegar atvikið átti sér stað. Líkamsleifar hans voru fluttar af vettvangi þann 10. apríl, rúmri viku eftir að hann birti sitt síðasta myndband á YouTube.
Leiniö naut talsverðra vinsælda á netinu og fylgdust nær 88 þúsund áskrifendur með efni hans, sem að mestu snerist um gönguferðir og útivist í finnskri náttúru. Síðasta myndband hans, sem ber titilinn „The Forbidden Mire: Roaming Southern Finland's 2nd Largest Bog“, hefur þegar verið horft á yfir 143 þúsund sinnum.
Óljóst er hvort Leiniö hafi verið að taka upp efni fyrir rás sína þegar hann lést.
Rannsókn á tildrögum andlátsins er lokið og er ekki talið að saknæm háttsemi hafi átt sér stað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir