Svavar Stefánsson hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir mörg hótunarbrot.
Hann var ákærður fyrir hótunarbrot árið 2023 með því að hafa á tímabilinu frá 27. mars 2023 til 21. júlí sent manni skilaboð úr síma með hótunum um líflát, ógnanir og kynferðislegt ofbeldi og var þetta til þess fallið að vekja ótta hjá manninum um líf sitt og velferð.
Hann var ákærður fyrir hótunarbrot á tímabilinu 6. júní til 21. júlí 2023 með því að hafa sent manninum hljóðskilaboð úr síma með hótunum um líflát, ógnanir og kynferðislegt ofbeldi og var þetta til þess fallið að vekja ótta hjá manninum um líf sitt og velferð.
Hann var einnig ákærður fyrir að hafa sent manninum tvær myndir úr síma af hníf með beittu blaði og var þetta til þess fallið að vekja ótta hjá manninum um líf sitt og velferð.
Svavar játaði brot sitt og sagði réttinum að hann hefði fengið heilablóðfall fyrir tæpu ári og væri að jafna sig eftir það. Síðan þá hefði hann alfarið snúið við blaðinu og hætt allri fíkniefnaneyslu.
Ekki er vitað til þess að hann hafi orðið kærustu sinni að bana og hefur hann ekki verið dæmdur fyrir slíkt afbrot.
Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi og er dómurinn skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða málskostnað upp á 247.380 krónur og 60.264 krónur í annan sakarkostnað.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir