Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Handtekinn fyrir líflátshótanir gegn hollensku krónprinsessunni

Axir merktar „Alexía“ fund­ust

Handtekinn fyrir líflátshótanir gegn hollensku krónprinsessunni
Katrín Amalía Maður á fer­tugs­aldri hefur verið hand­tek­inn vegna hót­an­anna Mynd: NICOLAS TUCAT / AFP

Þrjátíu og þriggja ára maður var hand­tek­inn í Hollandi í febr­úar grun­aður um að hafa hótað að myrða Katrínu Amalíu, erf­ingja hol­lensku krún­unnar, og systur hennar Alexíu prinsessu. Þetta kemur fram í frétt Afton­bla­det.

Lögregla fann ýmsa óhugn­an­lega muni í fórum manns­ins, meðal ann­ars tvær axir með áletr­un­unum „Alexia“, „Mossad“ og „Sieg Heil“. Þá fannst einnig hand­skrifað blað þar sem nöfn prinsessnanna voru skráð ásamt orð­inu „blóð­bað“.

Maðurinn er sagður tengj­ast nýna­sískum hópum, en enn hefur ekk­ert skýrt til­efni fyrir fyr­ir­hug­aðri árás komið fram.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Katrín Amalía verður fyrir hót­unum. Árið 2022 var henni hótað af svo­kall­aðri „Mocro-mafíu“, glæpa­sam­tökum sem tengj­ast fíkni­efna­við­skiptum í Hollandi og víðar í Evrópu.

Vegna hót­an­anna þurfti prinsessan að yfir­gefa náms­manna­búð sína í Amster­dam aðeins nokkrum vikum eftir að hún hóf háskóla­nám og flytja aftur í höll­ina Huis ten Bosch Palace undir mik­illi örygg­is­gæslu.

Síðar lauk hún hluta náms síns á Spáni undir vernd spænsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar áður en hún sneri aftur til Hollands árið 2024 eftir að örygg­is­ráð­staf­anir voru hertar.

Í við­tali árið 2023 sagði prinsessan að hún sakn­aði „venju­legs lífs“ og þess að geta ein­fald­lega gengið um götur eða farið í versl­anir án ótta.

„Ég sakna eðli­legs náms­manna­lífs,“ sagði hún.

Faðir hennar, Vil­hjálmur Alex­ander, sagð­ist eiga erfitt með að lýsa því hversu þung­bært ástandið hefði verið fyrir fjöl­skyld­una.

Frétt Afton­bla­det rifjar einnig upp fjölda árása og hót­ana gegn evr­ópskum kon­ungs­fjöl­skyldum í gegnum tíð­ina. Þar á meðal var þegar Anna prinsessa varð fyrir mann­ránstil­raun í Lundúnum árið 1974 og svar­aði árás­armann­inum með hinum frægu orðuð: „Not bloody likely!“ eða eins og það gæti útlagst á íslensku: „Ekki séns í hel­víti!“

Einnig er rifjað upp þegar maður braust inn í svefn­her­bergi Elísa­betar II árið 1982 í einu stærsta örygg­is­hneyksli bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Kon­ungs­hallir víðs vegar um Evrópu hafa síð­ustu ár aukið örygg­is­ráð­staf­anir veru­lega. Þar á meðal hafa verið settar upp flug­vall­ar­líkar örygg­is­skoð­anir við kon­ungs­höll­ina í Stokk­hólmi og hærri hlið við Drottn­ing­holm-höll­ina í sömu borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco