Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Peningar

Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Ferðamenn slasaðir eftir hatursglæp í Kaupmannahöfn

„Ég vil ekki hefnd, en ég vil rétt­læti“

Nyhavn
Nyhavn Nyhavn er þekktur ferða­manna­staður Mynd: Shutterstock

Heimsókn Iliess Pays til hins þekkta ferða­manna­staðar Nyhavn í Kaup­manna­höfn end­aði með lík­ams­árás eftir að tveir danskir menn réð­ust að honum og vinum hans með kyn­þátta­for­dómum og bar­smíðum.

Iliess, sem er 29 ára og frá Strasbourg, var í Kaup­manna­höfn síð­ast­lið­inn laug­ar­dag ásamt sænsku vin­konu sinni Hodan Hirsi, sem býr í Malmö, og frænda hennar Abdulra­hman Hirsi.

Iliess PaysIlliess starfar sem dans­ari

Seint um kvöldið voru þau á leið til Nyhavn þegar tveir ölv­aðir menn tóku eftir hópnum og byrj­uðu að áreita þau. „Þetta er staður sem maður sér á póst­kortum,“ segir Iliess í sam­tali við Afton­bla­det.

Á leið­inni þangað komu tveir ölv­aðir danskir menn auga á þre­menn­ing­ana og blóm sem stóð upp úr bak­poka Iliess Pays.

„Má ég fá rós­ina?“ kall­aði annar mann­anna.

Félag­arnir umrætt kvöldÁrás­ar­menn­irnir spurðu fyrst hvort þeir mættu fá rós

Félag­arnir reyndu að hunsa hina drukknu Dani en þeir fylgdu þeim eftir og reyndu að ögra þeim áður en þeir fóru að hrópa að þeim rasískum orðum.

Hodan Hirsi segir menn­ina meðal ann­ars hafa notað niðr­andi kyn­þátta­hug­tök á borð við n-orðið og hrópað rasísk ummæli.

Hodan HirsiHodan varð vitni að árásinni

Skömmu síðar voru Iliess og Abdulra­hman slegnir aftan frá og féllu með­vit­und­ar­lausir til jarðar.

„Ég var sleg­inn aftan frá og eftir það man ég lítið,“ sagði Iliess.

Samkvæmt Hodan, sem varð ekki fyrir árásinni sjálfri, stigu menn­irnir á höfuð Abdulra­hman og börðu og spörk­uðu í Iliess meðan hann lá á jörð­inni. Á meðan héldu þeir áfram að hrópa rasísk ummæli.

Eftir árás­ina voru menn­irnir fluttir á sjúkra­hús í Kaup­manna­höfn. Abdulra­hman slas­að­ist alvar­leg­ast, nef­brotn­aði og var mjög bólg­inn í and­liti.

Iliess segir árás­ina hafa haft mikil áhrif á sig bæði lík­am­lega og and­lega.

„Ég er hrein­skiln­is­lega í áfalli,“ sagði hann og bætti við að hann ætti erfitt með að standa, sitja og sofa vegna verkja.

Hann starfar sem dans­ari og segir lík­ama sinn vera sitt helsta atvinnu­tæki.

Þau gagn­rýna einnig við­brögð lög­regl­unnar í Kaup­manna­höfn og segja málið ekki hafa verið tekið nægi­lega alvar­lega. Að sögn þeirra hafa þau enn ekki fengið frek­ari upp­lýs­ingar frá lög­reglu eftir skýrslu­töku.

Árás­ar­menn­irnir flúðu af vett­vangi og óvíst er hvort þeir hafi verið hand­teknir.

„Ég vil ekki hefnd, en ég vil rétt­læti,“ sagði Iliess.

Hodan Hirsi segir mik­il­vægt að málið gleym­ist ekki.

„Við megum ekki láta þetta fara fram hjá okkur,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
6
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum lést skyndi­lega

Alexander Darchiev hafði aðeins gegnt embættinu frá því snemma árs 2025.
Heimur

HPV-bólu­setn­ingar taldar hafa komið í veg fyrir um 200 dauðs­föll í Englandi

Heimur

Rétt­ar­höld hafin vegna ban­vænnar hnífa­árásar á sextán ára stúlku

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Heimur

Leik­ar­inn Stacy Keach lát­inn 85 ára að aldri

Heimur

Heimur

Dóm­stólar hafna beiðnum um lausn 14 palest­ínskra lækna

Sumir læknanna hafa verið í haldi í meira en tvö ár án þess að hafa verið ákærðir eða leiddir fyrir dóm, að sögn mannréttindasamtaka.
Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn