Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Auður ber þróunina á Íslandi saman við stöðu AfD í Þýskalandi

„Sam­fé­lagið hefur birt nýja mynd af sér.“

Auður ber þróunina á Íslandi saman við stöðu AfD í Þýskalandi
Auður Jóns­dóttir Auði lýst ekki á blik­una Mynd: Wikipedia

Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur og blaða­kona, seg­ist upp­lifa íslenskt sam­fé­lag sem sífellt fram­and­legra eftir aukið fylgi Mið­flokk­ur­inn fær í stjórn­málum.

Í Facebook-færslu sem vakið hefur athygli lýsir Auður áhyggjum sínum af því sem hún kallar „normalís­er­ingu“ flokks­ins og segir ekki aðeins flokk­inn sjálfan bera ábyrgð á þeirri þróun heldur einnig sam­fé­lagið í heild.

„Um leið og Mið­flokk­urin geys­ist stór­stígur fram, í átt að algjörri normalís­er­ingu, sautján full­trúar á lands­vísu og við­tal við Hildi í frétt­unum þar sem ekki annað að heyra á henni en að Mið­flokk­ur­inn sé góður kostur við stjórn höf­uð­borg­ar­innar, þá birt­ist sam­fé­lagið manni álíka fram­andi og nútím­inn virð­ist stundum vera Mið­flokknum,“ skrifar Auður.

Hún segir sam­fé­lagið ein­kenn­ast af ákveðnu „and­vara­leysi“ gagn­vart þeirri orð­ræðu sem hún tengir flokknum og lýsir van­líðan sinni gagn­vart þró­un­inni.

„Hvað er allt þetta fólk að hugsa? hugsar kona og finnst hún um leið ekki lengur eiga heima þarna heima hjá sér,“ skrifar hún.

Auður rifjar jafn­framt upp að þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son varð for­sæt­is­ráð­herra hafi henni liðið svo illa að hún hafi rætt við fyrr­ver­andi eig­in­mann sinn um að flytja úr landi. Fjöl­skyldan hafi í kjöl­farið flutt til Berlínar þar sem hún bjó í fjögur ár.

Hún seg­ist nú sjá sam­bæri­lega þróun í Þýska­landi þar sem þjóð­ern­i­s­inn­aði hægri­flokk­ur­inn Alt­ernative für Deutschland hafi að hennar mati einnig færst nær meg­in­straumi stjórn­mál­anna.

„AFD hefur normalíserað sig upp í hæstu hæðir, nokkuð sem eng­inn hefði trúað fyrir bara tíu árum síðar, hér í landi minn­is­varða um hættur gleymsk­unnar,“ skrifar hún og bætir við: „Hættur tæki­fær­is­sinn­aðra orð­ræðna. Hættur útlend­inga­andúðar. Hættur mis­not­aðrar og öfug­snú­innar kynjapóli­tíkur. Hættur for­dóma gagn­vart öllum þeim sem ekki eru gagn­kyn­hneigðir og föl­bleikir á hör­und. Hættur menn­inga­for­dóma. Hætt­urnar í sinnu­leysi gagn­vart mann­rétt­indum. Hætt­urnar við allt þetta: Við og hinir.“

Að lokum segir Auður að sam­fé­lagið hafi nú þegar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar eru yfir­staðnar, hafa „birt nýja mynd af sér“ .

„En allt svo­leiðis gleym­ist þegar Mið­flokk­ur­inn er skyndi­lega bara álit­inn góður kostur til að ganga í að spara hjá borg­inni og róta í skipu­lagi leik­skóla. Orðræðan virð­ist engu skipta. Við stöndum á ein­hvers konar brún breyt­inga – og hvort sem Mið­flokk­ur­inn verður í fram­sæt­inu í borg­ar­stjórn og víðar eða ekki, þá eru þær byrj­aðar að taka á sig mynd. Sam­fé­lagið hefur birt nýja mynd af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum