Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kýldi kvenkyns fangavörð í andlitið

Hafði ekki brotið af sér áður

Kýldi kvenkyns fangavörð í andlitið
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Mynd: Lára Garðarsdóttir

Karl­maður hefur verið dæmdur í 60 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir árás á kven­kyns fanga­vörð í fanga­geymslu lög­regl­unnar í Reykja­vík í lok nóv­em­ber árið 2024. Dómur í mál­inu var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur eftir að mað­ur­inn ját­aði brotið ský­laust.

Samkvæmt ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara réðst mað­ur­inn, Rytis Barkauskas, á fanga­vörð­inn sem var við skyldu­störf í fanga­geymslu lög­reglu­stöðv­ar­innar í Reykja­vík laug­ar­dag­inn 30. nóv­em­ber 2024. Hann sló fanga­vörð­inn hnefa­höggi í and­litið með þeim afleið­ingum að hún hlaut bólgu á efri og neðri vör, sár inn­an­vert í vörum og eymsli yfir kinn­beini.

Fyrir dómi ját­aði Barkauskas brotið án fyr­ir­vara. Fram kom í saka­vott­orði hans að hann hefði ekki áður hlotið dóm hér á landi fyrir refsi­verðan verknað.

Með dómi var honum gert að sæta 60 daga fang­elsi en fulln­ustu refs­ing­ar­innar var frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennu skil­orði.

Þá var honum gert að greiða fanga­verð­inum 400 þús­und krónur í miska­bætur auk vaxta. Einnig var honum gert að greiða 248 þús­und krónur í máls­kostnað og tæpar 283 þús­und krónur í málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina