Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Yfirmaður herdeildarinnar sem myrti Hind litlu alvarlega slasaður

Hezbollah særðu þrjá ísra­elska her­menn í dróna­árás í gær

Yfirmaður herdeildarinnar sem myrti Hind litlu alvarlega slasaður
Meir Biderman Biderman berst nú fyrir lífi sínu Mynd: Instagram

Hezbollah gerði dróna­árás í suð­ur­hluta Líbanons í gær þar sem hátt­settur yfir­maður í ísra­elska hernum særð­ist alvar­lega. Um er að ræða Meir Biderman, 41 árs ofursta í hinni ill­ræmdu 401. bryn­varða­sveit ísra­elska hers­ins.

Sveitin hefur verið nefnd sem sú her­sveit sem beri ábyrgð á drápi hinnar sex ára palest­ínsku stúlku Hind Rajab í Gaza City árið 2024.

Tveir aðrir her­menn særð­ust einnig í árásinni og voru allir fluttir á sjúkra­hús í Haifa til með­ferðar. Samkvæmt ísra­elskum miðlum hlaut Biderman alvar­lega höf­uð­á­verka en hefur nú kom­ist til með­vit­undar og er sagður í stöð­ugu ástandi.

Biderman tók við stjórn sveit­ar­innar eftir að for­veri hans féll í sprengju­árás í Jabalia í norð­ur­hluta Gaza í upp­hafi stríðs­ins í októ­ber 2023.

Tengd drápi Hind Rajab

401 bryn­varða­sveitin hefur verið sögð bera ábyrgð á drápi Hind Rajab, sex ætt­ingja hennar og tveggja sjúkra­flutn­inga­manna sem reyndu að bjarga henni í Gaza-borg í jan­úar 2024.

Hind RajabHind lést aðeins sex ára gömul

Samkvæmt Dyab Abou Jahjah, stofn­anda The Hind Rajab Foundation, er sama her­sveit einnig sögð hafa tekið þátt í inn­rásinni á al-Shifa-sjúkra­húsið og að hafa „ógnað“ íbúum í Rafah.

Hind Rajab Foundation hefur safnað saman gögnum gegn her­deild­inni sem kölluð er „Vampire Empire Company“ innan 52. bryn­varða­fylk­is­ins. Gögnin voru lögð fram í 120 blað­síðna skýrslu hjá Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stólnum í Haag.

Í skýrsl­unni eru meðal ann­ars nefndir Beni Aharon, yfir­maður 401. bryn­varða­sveit­ar­innar, Daniel Ella, yfir­maður 52. bryn­varða­fylk­is­ins, og Sean Glass, yfir­maður „Vampire Empire Company“.

Samtökin sögð­ust ekki geta stað­fest hvort Biderman væri meðal þeirra nafna sem lögð voru fram í trún­aði fyrir Alþjóða­glæpa­dóm­stólnum, en stað­festu að hann hefði starfað innan sömu her­deildar.

Drónar Hezbollah valda Ísrael áhyggjum

Árásin kemur á sama tíma og drónar Hezbollah eru sagðir verða sífellt meira vanda­mál fyrir ísra­elska her­inn í suð­ur­hluta Líbanons.

Samkvæmt ísra­elska rík­is­út­varp­inu KAN hafa sprengju­drónar Hezbollah tak­markað um 80 pró­sent aðgerða ísra­elska hers­ins á svæð­inu. Herinn hafi því dregið úr ferðum að degi til við landa­mærin og fram­kvæmi nú flestar aðgerðir í skjóli nætur.

Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr tún­ísku kvik­mynd­inni The Voice of Hind Rajab, sem fjallar um morðið á Hind litlu en myndin var meðal ann­ars til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna sem besta erlenda kvik­myndin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife