Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Maður skotinn eftir partí á Kársnesi

Einn hefur verið hand­tek­inn vegna máls­ins

Lögregla hand­tók mann og flutti annan á slysa­deild eftir meinta skotárás á Kársnes um og eftir hádegi í dag.

Agnes Eide Krist­ín­ar­dóttir, yfir­lög­reglu­þjónn á rann­sókn­ar­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stað­festir við RÚV að grunur sé um að annar mann­anna hafi skotið hinn í hönd­ina.

Hún segir að skot­vopn hafi fund­ist á vett­vangi, þó ekki hafi enn verið stað­fest hvort það sé vopnið sem notað var í árásinni. Málið er nú til rann­sóknar hjá lög­reglu.

Íbúar í hverf­inu segj­ast hafa heyrt skot­hvell fyrr um dag­inn. Einn þeirra sagði að sér hefði ekki dottið í hug að um skot­hvell væri að ræða fyrr en lög­regla mætti á stað­inn.

Annar nágranni sagði að mikið partí­hald hefði verið í hús­inu um nótt­ina þar sem hand­takan fór síðar fram. Hann sagð­ist hafa heyrt hróp um hjálp og síðan hvell, en ekki áttað sig á því fyrr en lög­reglan mætti að lík­lega hefði verið um skot að ræða.

Þriðji við­mæl­andi frétta­stofu RÚV sagð­ist einnig hafa heyrt hvell­inn.

Samkvæmt heim­ildum var blóð sjá­an­legt á hurð að stiga­gangi húss­ins.

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að blóð­ugur maður hefði komið inn í bak­aríið Brikk við Hafn­ar­braut og sagt starfs­fólki að hann hefði verið skot­inn í hönd­ina. Hann var með hand­klæði vafið utan um hönd­ina.

Lögregla sendi fjöl­mennt lið á vett­vang, þar á meðal að minnsta kosti fjóra lög­reglu­bíla og þrjá bíla frá Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra, sem yfir­leitt er kölluð út þegar grunur leikur á um vopna­burð.

Maður var leiddur út úr hús­inu í hand­járnum og sást lög­regla leita í görðum í nágrenn­inu. Þá var svæði við einn stiga­gang afmarkað með lög­reglu­borða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

HPV-bólu­setn­ingar taldar hafa komið í veg fyrir um 200 dauðs­föll í Englandi

Engin kona á aldrinum 20–24 ára lést úr leghálskrabbameini í Englandi á árunum 2020 til 2024. Án bólusetninga hefðu þær verið um 23, að mati vísindamanna.
Heimur

Rétt­ar­höld hafin vegna ban­vænnar hnífa­árásar á sextán ára stúlku

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Heimur

Leik­ar­inn Stacy Keach lát­inn 85 ára að aldri

Heimur

Dóm­stólar hafna beiðnum um lausn 14 palest­ínskra lækna

Innlent

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heitavatnsleysið í kjölfar eldgossins í febrúar 2024 var að mati dómsins óviðráðanlegt atvik sem gat leyst gististaðinn undan ábyrgð.
Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti