Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Klámstjarna ákærð fyrir líkamsárás

Konan segir að hún telji sig hafa misst með­vit­und

Klámstjarna ákærð fyrir líkamsárás
Drake Von á AVN-verð­launa­há­tíð­inni Mynd: ETHAN MILLER / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Nýlega birt myndefni úr búk­mynda­vél lög­reglu í Las Vegas varpar ljósi á ásak­anir konu á hendur klám­stjörn­unni Drake Von, sem hefur verið ákærður fyrir meðal ann­ars kyrk­ingu og heim­il­is­of­beldi.

Í mynd­skeið­inu, sem TMZ hefur birt, lýsir konan því fyrir lög­reglu­mönnum að Von hafi legið ofan á henni og þrengt að öndun hennar þannig að hún hafi átt erfitt með að anda. Hún seg­ist hafa reynt að ýta honum af sér en að lokum sparkað í hann til að losna undan honum. Þá hafi hann sam­kvæmt frá­sögn hennar tekið far­síma hennar í átök­unum.

Konan segir að hún telji sig hafa misst með­vit­und í örskamma stund.. Hún hafi ekki munað eftir um tveimur sek­úndum af atburða­rásinni. Að hennar sögn hafi hann í kjöl­farið ýtt henni niður á jörð­ina, neitað að skila sím­anum og sagt henni að fara á hnén og biðja ef hún vildi fá hann aftur.

Samkvæmt fram­burði hennar tókst henni síðar að flýja vett­vang og hringja í neyð­ar­lín­una. Í mynd­skeið­inu sést hún einnig sýna lög­reglu mar og skrámur á höndum og hnjám, en lög­reglu­menn mynd­uðu áverk­ana sem hluta af rann­sókn máls­ins.

Í öðrum hluta upp­tök­unnar ræða lög­reglu­menn við tví­bura­bróður Drake Von, Jordan Von, fyrir utan hús sem teng­ist rann­sókn­inni. Þar upp­lýsa þeir hann um að ásak­anir um kyrk­ingu og heim­il­is­of­beldi hafi verið bornar fram gegn bróður hans og að hús­leit fari fram á staðnum sam­kvæmt dóms­úr­skurði.

Drake Von hefur alfarið hafnað ásök­un­unum. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi TMZ eftir hand­töku sína sagði hann að allar ásak­anir væru rangar, málið byggð­ist á mis­skiln­ingi og að ákær­urnar yrðu felldar niður. Þá lýsti hann mál­inu sem til­raun til að afla athygli fjöl­miðla.

Von var hand­tek­inn og ákærður fyrir heim­il­is­of­beldi með kyrk­ingu, þvingun með hót­unum eða beit­ingu lík­am­legs afls í tengslum við heim­il­is­of­beldi og minni­háttar heim­il­is­of­beldi. Hann hefur síðan verið lát­inn laus gegn trygg­ingu á meðan málið er til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Brotin áttu sér stað á fimm ára tímabili þegar ferill Russells Brand stóð sem hæst á fyrsta áratug aldarinnar.
Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Heimur

Heimur

Gagn­rýnir hetju­dýrkun á Karl Bushby

„Hversu margar konur gætu einfaldlega gengið frá skyldum sínum í 28 ár á meðan einhver annar annaðist uppeldi barna þeirra?“
Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká