Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslenskar konur þær reiðustu á Norðurlöndum

Breskar eru hins vegar þær reið­ustu í Evrópu

Íslenskar konur þær reiðustu á Norðurlöndum
Konur á kvenna­frídeg­inum í fyrra Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Ný alþjóð­leg skýrsla á vegum Hologic Global Women's Health Index 2026 sýnir að breskar konur upp­lifa meiri reiði og streitu en kven­menn í öðrum Evr­ópu­löndum. Tæplega 22% þeirra greindu frá mik­illi reiði í könnun á vegum skýrsl­unnar. Helstu orsakir eru taldar vera aukið álag á heil­brigð­is­kerfið, ólaunuð umönn­un­ar­vinna og efna­hags­legar aðstæður, á meðan Norð­ur­löndin leiða í lífs­gæðum.

Íslenskar konur standa almennt mjög fram­ar­lega í alþjóð­legum sam­an­burði og mæl­ast meðal þeirra hæstu í heim­inum þegar kemur að lífs­gæðum, öryggi og and­legri vellíðan. Samkvæmt gögnum skýrsl­unnar er Ísland í 40. sæti yfir heild­ar­vísi­töl­una með 59 stig af 100, sem er hærra en með­al­tal Evr­ópu­sam­bands­ins en sýnir jafn­framt ákveðnar áskor­anir Íslands þegar kemur að for­vörnum.

Þegar staða Íslands er borin saman við hin Norð­ur­löndin kemur í ljós ákveðin þver­sögn. Þótt Ísland mælist ítrekað í efsta sæti á heims­vísu hvað varðar almennt jafn­rétti kynj­anna sam­kvæmt ⁠World Economic Forum, dregst Ísland veru­lega aftur úr nágranna­þjóðum sínum þegar kemur að sér­tækri heil­brigð­is­þjón­ustu kvenna. Ísland hafnar í 40. sæti á heims­vísu á meðan hin Norð­ur­löndin raða sér öll á topp 20 list­ann.

Eins og fyrr segir eru breskar konur meðal þeirra reið­ustu í Evrópu. Nið­ur­stöð­urnar sýna að 22% breskra kvenna, eða rúm­lega fimmt­ungur, fundu fyrir mik­illi reiði eða gremju sem er 47% aukn­ing á milli ára. Bretland fellur niður í 48. sæti af 143 löndum þegar kemur að almennri vellíðan kvenna. Í umræðum og greinum breskra fjöl­miðla (eins og ⁠The Times og ⁠AOL) eru eft­ir­far­andi ástæður helst taldar útskýra þessa svoköll­uðu „reiði­bylgju“.

„Reiðibylgja“ breskra kvenna

Teknar eru fram nokkrar orsakir fyrir þess­ari auknu gremju. Kerf­is­lægur brestur í heil­brigð­is­þjón­ust­unni eins og langir biðlistar er meðal þess sem 70% breskra kvenna segj­ast finna fyrir og hafa tafir á lækn­is­þjón­ustu á síð­ustu fimm árum valdið mik­illi van­líðan og kvíða.

Svo er talað um „lækn­is­fræði­lega kven­fyr­ir­litn­ingu“ þar sem konur upp­lifa ítrekað að ein­kenni þeirra og sárs­auki séu van­metin eða afgreidd sem „ímyndun“, sér­stak­lega þegar kemur að sjúk­dómum eins og endó­metríósu. Konur virð­ast vera að upp­lifa auk­inn sárs­auka en sam­kvæmt skýrsl­unni seg­ist þriðj­ungur breskra kvenna búa við dag­lega lík­am­lega verki, sem er 10% aukn­ing á milli ára.

Ólaunuð umönn­un­ar­vinna og tvö­falt vinnu­á­lag eins og umönnun barna og aldr­aðra er annað sem er tekið fram í skýrsl­unni. Breskar konur bera meira en tvö­falt meiri ábyrgð á barna­upp­eldi en karlar og eru 29% lík­legri til að sjá um umönnun aldr­aðra ætt­ingja.

Vegna und­ir­fjár­mögn­unar í breska heil­brigðis- og félags­kerf­inu lendir þungi þjón­ust­unnar á herðum kvenna heima fyrir.

Mismunur á efna­hags­legum lífs­gæðum, kjara­skerð­ing og launa­munur kynj­anna er enn tölu­verður þrátt fyrir ára­tuga kjara­bar­áttu í Bret­landi. Í þessu sam­hengi er talað um að orsak­irnar séu helst lægri fram­færslu­kostn­aður, efna­hag­skreppa og verð­bólga, meðal ann­ars vegna Brexit.

Að lokum er talað um öryggi og ofbeldi gegn konum. Margar breskar konur lýsa yfir ótta á götum úti og upp­lifa að sam­fé­lagið taki ofbeldi, áreitni og staf­rænu ofbeldi gegn konum ekki nógu alvar­lega. Til­finn­ingin er að bar­áttu­mál kvenna séu að fær­ast aftur úr, í stað þess að sækja fram á við, og það veldur djúpri gremju meðal kvenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð